University of Iceland
Að starfa í skugga neikvæðrar umræðu: Eigindlega rannsókn á upplifun leikskólastarfsfólks á umræðu um leikskóla í Reykjavík.
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er ljósi varpað á upplifun leikskólastarfsfólks á neikvæðri umræðu í garð leikskóla og starfsins sem þar er unnið. Kenningarleg nálgun byggir á kenningum um innrömmun og stimplun. Fjallað er um rannsóknir sem gerðar hafa verið á samfélagslegri stimplun starfsins, faglegri sjálfsmynd og upplifun starfsfólks af stöðu og virðingu starfi sínu. Rannsóknin er byggð á eigindlegri aðferðafræði þar sem viðtöl voru tekin við fjóra leikskólastarfsmenn. Gögnin voru greind með þemagreiningu. Helstu niðurstöður benda til þess að leikskólastarfsfólk upplifi umræðu um leikskólamál að stórum hluta neikvæða og einsleita. Viðmælendur voru sammála um að umræðan ætti fremur að snúast um börnin sjálf og þeirra þarfir. Á heildina litið benda niðurstöður til þess að neikvæð umræða um leikskóla hafi bein áhrif á ímynd starfsins og virðingu þess í samfélaginu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórdís Birta Jónsdóttir 2003-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52799
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52799