Back to search

University of Iceland

Dulhyggja. Þýðing á lykilkafla úr The Varieties of Religious Experience með nokkrum skýringum

Abstract

dc:description.abstract

Bókin The Varieties of Religious Experience eftir bandaríska heimspekinginn og sálfræðinginn William James kom út árið 1902 og varð fljótlega með vinsælli heimspeki- og sálfræðiritum þess tíma og hefur verið fáanleg á prenti í rúmlega hundrað ár. Eitt það merkilegasta og áhrifaríkasta við bókina er hvernig hún skilgreinir trúarbrögð sem persónulega reynslu, í einrúmi, af hverju því sem er guðlegt fyrir þig. Hún skilgreinir einnig það sem er sameiginlegt við öll trúarbrögð og trúarreynslu og leitast við að sameina frekar en sundra. Áhersla bókarinnar á persónulegt samband við æðri mátt hafði meðal annars áhrif á stofnendur AA-samtakanna og annara 12 spora samtaka sem fylgdu í kjölfarið. Ritgerðin er í tveimur hlutum. Í fyrri hluta er fjallað stuttlega um William James, bókina The Varieties of Religious Experience og grunnhugmyndir hennar. Einnig er greinargerð á orðavali á nokkrum lykilorðum sem koma fyrir í þýðingunni. Síðari hluti og meginefni ritgerðarinnar er þýðing á lykilkaflanum „Mysticism“ úr bókinni The Varieties of Religious Experience. James lýsir sjálfur mikilvægi kaflans við upphaf kaflans: „Ég trúi því að maður geti sannarlega sagt að persónuleg trúarleg upplifun eigi rætur sínar og miðju í dulrænu meðvitundarástandi; þannig að fyrir okkur, sem í þessum fyrirlestrum gerum persónulega reynslu að viðfangi rannsóknar okkar, ætti umfjöllun um slíkt meðvitundarástand að mynda lykilkafla bókarinnar, sem allir hinir kaflarnir sækja ljós sitt til.” Þessi tilvitnun útskýrir af hverju ég ákvað að þýða einmitt þennan kafla bókarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jarþrúður Karlsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52625
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52625

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Jarþrúður Karlsdóttir 1979-. Dulhyggja. Þýðing á lykilkafla úr The Varieties of Religious Experience með nokkrum skýringum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52625