Back to search

University of Iceland

Flæði í leik og námi leikskólabarna

Abstract

dc:description.abstract

Leikskólastarf á Íslandi byggir á þeirri sýn að leikur sé meginnámsleið barna og að vellíðan, virk þátttaka og sjálfstæði séu í forgrunni. Hugtakið flæði (e.flow), eins og það er skilgreint af Mihaly Csikszentmihalyi, lýsir ástandi djúprar einbeitingar og innri áhugahvatar og hefur í auknum mæli verið tengt námi og leik barna. Tilgangur ritgerðarinnar er að rýna í flæði og birtingarmyndir þess í leikskólastarfi á Íslandi. Ritgerðin byggir á fræðilegri heimildarannsókn þar sem greindar eru innlendar og erlendar rannsóknir um flæði, leik, hæglæti (e. slow pedagogy) og hlutverk leikskólakennara. Niðurstöður benda til þess að flæði birtist einkum í frjálsum og samfelldum leik þegar börn hafa raunverulegt sjálfstæði, aðgengi að fjölbreyttum efnivið og nægan tíma án truflana. Fagleg nærvera leikskólakennara, skipulag umhverfis sem styður við sjálfstæði, virkni og einbeitingu og jafnvægi milli áskorana og færni barna, þar sem viðfangsefni er hæfilega krefjandi miðað við getu barna, eru lykilþættir til að skapa aðstæður til flæðis. Niðurstöður umfjöllunnar varpa ljósi á tengsl flæðis við merkingarbært nám (e. meaningful learning) og vellíðan barna, þær benda einnig til þess að hugtakið geti nýst sem fagleg viðmið í þróun leikskólastarfs þar sem gæði reynslu barna eru í forgrunni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Ósk Unnarsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52323
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52323

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Ósk Unnarsdóttir 2001-. Flæði í leik og námi leikskólabarna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52323