Back to search

University of Iceland

Tengsl notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu við brjóstagjöf fyrstu sex mánuðina eftir fæðingu. Afturvirk ferilrannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með eingöngu brjóstagjöf fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu, en að uppfylla þær ráðleggingar getur verið krefjandi. Vaxandi vísbendingar benda til þess að notkun á ytra oxýtósíni í fæðingu geti haft neikvæð áhrif á þróun brjóstagjafar. Mikil aukning hefur orðið á notkun ytra oxýtósíns (Syntocinon) í fæðingarþjónustu. Lyfið er ýmist notað til framköllun fæðingar, meðhöndlunar á blæðingu eftir fæðingu eða til fyrirbyggingar blæðinga. Síðustu ár hafa rannsakendur beint sjónum sínum að mögulegum neikvæðum áhrifum af notkun ytra oxýtósíns á brjóstagjöf og virkni innra oxýtósíns. Tilgangur og markmið: Markmið þessarar rannsóknar var að skoða tengsl á milli notkunar á ytra oxýtósíns á 1. og/eða 2. stigi fæðingar og brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Efniviður og aðferð: Rannsóknin er megindleg afturvirk ferilrannsókn (e. a quantitative retrospective cohort study). Rafræn sjúkragögn kvenna og barna sem þáðu ungbarnavernd hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eftir fæðingu á árunum 2012-2021 voru nýttar til að kanna hvort notkun ytra oxýtósíns í fæðingu tengdist tíðni brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Brjóstagjöf var metin í sjö skoðunum eftir fæðingu yfir 6 mánaða tímabil og skráð sem: a) eingöngu, b) aðallega, c) með öðru, d) hætt og e) aldrei. Framkvæmd var undirhópagreining eftir ábendingu fyrir notkun ytra oxýtósíns (framköllun fæðingar í samanburði við örvun). Tölfræðileg úrvinnsla var framkvæmd í SPSS. Niðurstöður: Notkun á ytra oxýtósíni á 1. og/eða 2. stigi fæðingar tengist lægra hlutfalli eingöngu brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Tengslin komu snemma fram eftir fæðingu og héldust yfir rannsóknartímabilið. Munurinn var skýr meðal kvenna sem hófu fæðingu með sjálfkrafa sótt, en veikari og ekki alltaf tölfræðilega marktækur þegar fæðing hófst með framköllun. Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að notkun á ytra oxýtósíni á 1. og/eða 2. stigi fæðingar tengist síður hagstæðri þróun brjóstagjafar fyrstu 6 mánuðina eftir fæðingu. Þar sem um afturvirka ferilrannsókn var að ræða er ekki unnt að draga ályktanir um orsakasamband. Niðurstöðurnar gefa þó tilefni til að huga að markvissum stuðningi við brjóstagjöf meðal kvenna sem fá ytra oxýtósín í fæðingu. Lykilorð: Fæðing, brjóstagjöf, inngrip í fæðingu, innra oxýtósín, ytra oxýtósín.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arney Þyrí Guðjónsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52276
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52276

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arney Þyrí Guðjónsdóttir 1994-. Tengsl notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu við brjóstagjöf fyrstu sex mánuðina eftir fæðingu. Afturvirk ferilrannsókn. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52276