University of Iceland
Meira en þyngdartap: Áhrif efnaskiptaaðgerða á neysluhegðun og sálfélagslega líðan
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari heimildaritgerð er gerð fræðileg samantekt á efnaskiptaaðgerðum og tengslum þeirra við breytingar á áfengis- og vímuefnaneyslu. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvernig neyslumynstur getur þróast í kjölfar aðgerðar og hvaða þættir tengjast aukinni hættu á áfengis- og vímuefnaröskun hjá einstaklingum sem gangast undir slíkar aðgerðir. Einnig er fjallað um áhrif aðgerðanna á andlega líðan, líkamlega heilsu og félagslegar aðstæður. Greint er frá lífeðlisfræðilegum breytingum eftir efnaskiptaaðgerðir og hvernig þær hafa áhrif á frásog áfengis og upplifun einstaklinga af áfengis- og vímuefnaneyslu. Jafnframt er stuðst við fræðilegar kenningar sem varpa ljósi á samspil líffræðilegra, sálrænna og félagslegra þátta í mótun hegðunar og líðan eftir aðgerð. Niðurstöðurnar benda til þess að breytingar á neyslumynstri séu algengar eftir efnaskiptaaðgerðir. Áfengis- og vímuefnaneysla minnkar oft fyrst eftir aðgerð en getur aukist með tímanum. Einnig kemur fram að hluti einstaklinga greinist með áfengis- og vímuefnaröskun þrátt fyrir að hafa ekki haft fyrri sögu um slíkan vanda. Áhrif aðgerðanna á líkamlega heilsu, andlega líðan og félagslegar aðstæður eru breytilegar, þar sem sumir upplifa jákvæðar breytingar en aðrir aukna vanlíðan.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva María Arnarsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52205
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52205