Back to search

University of Iceland

Brostnar forsendur kaupanda fyrir samningsgerð í opinberum innkaupum. Heimildir kaupanda til að hætta við samningsgerð á grundvelli 2. mgr. 83. gr. laga um opinber innkaup

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu hvenær brostnar forsendur skv. 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup heimila kaupanda í opinberum innkaupum að hætta við samningsgerð og á hvaða tímapunkti. Skoðaðir verða helstu dómar um efnið, úrskurði kærunefndar útboðsmála og fræðirit þar sem álitaefni þetta ber á góma. Til að byrja með verður fjallað um meginreglur og forsendur í samningarétti. Þá verður fjallað um 83. gr. laga nr. 120/2016 sem lögfestir heimild til þess að hafna útboðum á grundvelli brostinna forsendna og tengsla lagaheimildarinnar við hina ólögfestu reglu samningaréttar um brostnar forsendur. Skoðað verður samspil samningaréttar, útboðsréttar og stjórnsýsluréttar þ.e. hvernig þessi réttarsvið eru samofin og hafa áhrif við úthlutun opinberra gæða. Farið verður sérstaklega yfir dóma- og úrskurðaframkvæmd hér á landi er varðar brostnar forsendur í samanburði við dóma Evrópudómstólsins. Að lokum verða dregin saman helstu atriði ritgerðarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnar Þór Snæland 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51729
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51729

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnar Þór Snæland 1998-. Brostnar forsendur kaupanda fyrir samningsgerð í opinberum innkaupum. Heimildir kaupanda til að hætta við samningsgerð á grundvelli 2. mgr. 83. gr. laga um opinber innkaup. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51729