University of Iceland
Fatlað fólk og atvinnulíf. Viðhorf fyrirtækja til atvinnuþátttöku fatlaðra einstaklinga
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði til ráðninga fatlaðs fólks og greina hvernig yfirlýstar stefnur um fjölbreytileika og samfélagslega ábyrgð endurspeglast í framkvæmd. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við stjórnendur og sérfræðinga í mannauðsmálum hjá sex fyrirtækjum sem tilnefnd voru til viðurkenningar fyrir upplýsingagjöf um sjálfbærni. Niðurstöðurnar sýna að fjölbreytileiki er orðinn fastur þáttur í mannauðs- og jafnréttisstefnum fyrirtækja en hugtakið er oft túlkað almennt og tengt fyrst og fremst kynjajafnrétti og jafnlaunavottun. Fötlun er vissulega nefnd sem hluti af fjölbreytileika, en í framkvæmd birtist hún sjaldnast sem sértækar aðgerðir eða aðlögun til að ráða fatlað fólk til starfa. Í gildum fyrirtækjanna er lögð áhersla á virðingu, traust og jafnrétti en þar skortir markvissa stefnumótun, fræðslu og greiningu á hindrunum sem fatlað fólk mætir á vinnustöðum. Viðhorf stjórnenda sýna einnig óljósan skilning á hugtakinu fötlun og í sumum tilvikum er ábyrgð á úrbótum færð yfir á fötluðu einstaklingana sjálfa. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að fyrirtæki líti ekki á fjölbreytileikastefnu sem táknrænar yfirlýsingar heldur tileinki sér markvissar aðgerðir sem feli í sér inngildingu. Skortur á upplýstri fræðslu um stöðu fatlaðs fólks og ómeðvitaðar útilokanir í ráðningum draga úr trúverðugleika stefna fyrirtækja. Framlag rannsóknarinnar liggur í því að varpað er ljósi á viðhorf stjórnenda til atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og kastljósinu beint að misræminu á milli stefnumótunar og framkvæmdar. Niðurstöðurnar sýna að þörf er á markvissari stefnumótun, aukinni fræðslu og aðgerðum sem stuðla að raunverulegri inngildingu. Rannsóknin getur því nýst bæði í áframhaldandi fræðilegri umræðu og sem hagnýtur leiðarvísir fyrir stefnu-mótun, réttindabaráttu og þróun þjónustu við fatlað fólk á íslenskum vinnumarkaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rut Þorsteinsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51513
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51513