Back to search

University of Iceland

Næringarástand aldraðra á bráðamóttöku - Skimun fyrir næringarástandi eldra fólks við komu á bráðamóttöku

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur og markmið: Vannæring er algeng meðal eldri einstaklinga og getur haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir einstaklingana sjálfa og heilbrigðiskerfið. Markmið þessarar rannsóknar var að meta hættu á vannæringu meðal eldri einstaklinga sem komu á bráðamóttöku á höfuðborgarsvæðinu yfir tveggja mánaða tímabil árið 2024. Aðferðir: Þversniðsrannsókn sem nær til 208 sjúklinga, 65 ára og eldri, sem komu á bráðamóttöku Landspítala á tímabilinu október til desember 2024. Hætta á vannæringu var metin með íslenska næringarskimunartækinu (ISNST). Upplýsingar um komur á bráðamóttöku og innlagnir síðustu 12 mánaða voru fengnar úr viðtölum og sjúkrahússkrám. Tengsl milli niðurstöðu skimunar og notkunar heilbrigðisþjónustu voru skoðuð með og án leiðréttinga fyrir truflandi þáttum. Að auki voru tvær spurningar úr ISNST einnig notaðar til að meta sjúklinga út frá styttri skimunarlista MST (Malnutrition Screening Tool) og niðurstöður beggja skimunatækja bornar saman. Niðurstöður: Af þeim 208 sem tóku þátt voru 195 skimaðir með skimunartækinu ISNST. Af þeim voru 50,7% í lítilli áhættu, 20,5% í miðlungs áhættu og 28,7% í mikilli áhættu á vannæringu. Algengustu einkenni meðal áhættuhópa voru ósjálfrátt þyngdartap og léleg matarlyst. Sjúklingar í miðlungs- og mikilli áhættu höfðu marktækt oftar verið lagðir inn (p = 0,009) og komið á bráðamóttöku (p = 0,006) á síðustu 12 mánuðum en þeir sem voru í lítilli áhættu. Þessi tengsl héldu sér eftir leiðréttingu fyrir aldri og kyni, en hurfu þegar einnig var leiðrétt fyrir krabbameini og lungnasjúkdómum. MST greindi 32,3% í áhættu, samanborið við 49,3% sem voru í miðlungs- eða mikilli áhættu samkvæmt ISNST. Ályktanir: Stórt hlutfall eldri einstaklinga sem leituðu á bráðamóttöku reyndist vera í áhættu á vannæringu. Skimun fyrir áhættu á vannæringu í þessu samhengi er mikilvæg þar sem vannæring tengist meiri notkun á heilbrigðisþjónustu. Báðar skimunaraðferðir reyndust gagnlegar. ISNST greindi fleiri í áhættu á vannæringu, en þó gæti styttra MST tækið hentað betur í hröðu vinnuumhverfi bráðamóttökunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Emese Kenderesi 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51500
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51500

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Emese Kenderesi 1997-. Næringarástand aldraðra á bráðamóttöku - Skimun fyrir næringarástandi eldra fólks við komu á bráðamóttöku. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51500