Back to search

University of Iceland

„Það er leiðsögumönnum hjartans mál að allir komist heilir heim“ Öryggi í ævintýraferðamennsku

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónustan á Íslandi er orðin ein af stærstu atvinnugreinum landsins og ævintýraferðamennska mikið stunduð, en mikil umræða hefur verið um stöðu öryggis í ævintýraferðamennsku. Ævintýraferðamennska gengur að nokkru leyti út á það að upplifa ævintýri án þess að öryggi ferðafólks sé ógnað. Starf leiðsögumanna er því gríðarlega mikilvægt, þeir fara oft með ferðamenn á staði þar sem slys geta auðveldlega gerst ef ekki er farið varlega og fyllsta öryggis gætt. Það þarf að finna þessa fínu línu milli þess að gefa ferðamönnum þá upplifun sem þeir vilja án þess að stofna þeim í hættu. Markmið þessarar ritgerðar er að greina hvernig öryggismál í ævintýraferðamennsku hér á landi hafa þróast, hvernig framboð á námi er núna og hvaða kröfur eru gerðar til ferðaþjónustufyrirtækja og leiðsögumanna. Í fræðilegum hluta rannsóknarinnar er fjallað um ævintýraferðamennsku og verður hún skoðuð í tengslum við ferðamennsku á norðurslóðum, stöðu framboðs menntunar, hlutverk leiðsögumanna og þá færni sem mikilvægt er að hafa sem leiðsögumaður. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði og gerð var viðtalsrannsókn. Tekin voru viðtöl við þrjá einstaklinga sem allir hafa mikinn áhuga og reynslu af skipulagi og framkvæmd ævintýraferða. Niðurstöður sýndu að mikill skortur er á þjálfun í mannlegum samskiptum og álíka í námi og þjálfun leiðsögumanna. Einnig er takmarkað aðgengi að námsleiðum sem kenna ævintýraleiðsögn, en frekar greiður aðgangur er að stökum námskeiðum. Samræma þarf kröfur til ferðaþjónustufyrirtækja og leiðsögumanna um land allt, þeir sem starfa á Sólheimajökli ættu að þurfa að fara eftir sömu kröfum og reglum og ferðaþjónustufyrirtæki sem starfa á Vatnajökli. Það er þó ýmislegt eins og fjöldi starfsmanna hjá ferðaþjónustufyrirtækjum sem þarf að taka tillit til og því flókið að setja alla undir sama hatt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ísabella Ingadóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50318
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50318

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ísabella Ingadóttir 2002-. „Það er leiðsögumönnum hjartans mál að allir komist heilir heim“ Öryggi í ævintýraferðamennsku. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50318