University of Iceland
Notkun ljósabekkja á Íslandi 2004-2024: Áhrif lagasetningar og tengsl við húðkrabbamein
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Þekkt er aukin áhætta á húðkrabbameinum í tengslum við ljósabekkjanotkun. Tíðni húðkrabbameina á Íslandi hefur aukist síðustu áratugi, en árið 2011 var gerð lagabreyting hér sem setti 18 ára aldurstakmark á ljósabekkjanotkun. Á Íslandi eru til gögn um ljósabekkjanotkun yfir 20 ára tímabil. Markmið: Að kanna breytingu á ljósabekkjanotkun á Íslandi árin 2004-2024, auk annarrar útfjólublárrar útsetningar, og rannsaka hvort tengsl séu við breytingar á nýgengi húðkrabbameina á Íslandi. Auk þess verður kannað hvort breyting hafi orðið á ljósabekkjanotkun eftir lagabreytinguna og hvort tengsl séu milli ljósabekkjanotkunar og sólbruna. Aðferðir: Gögn um ljósabekkjanotkun Íslendinga fengust úr könnunum frá samstarfshópi um útfjólubláa geislun. Opinber gögn um nýgengi húðkrabbameina fengust frá Krabbameinsskrá. Önnur gögn sem tengjast útfjólubláum geislum fengust úr ýmsum áttum. Notuð var lýsandi tölfræði ásamt því sem Joinpoint aðhvarfsgreining var notuð til þess að meta hvort marktæk breyting hafi orðið á ljósabekkjanotkun á tímabilinu. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi <0,05. Niðurstöður: Hlutfall þeirra sem fóru í ljós undanfarna 12 mánuði á rannsóknartímabilinu lækkaði úr 28% í 3,9% meðal fullorðinna og úr 29,9% í 7,3% meðal ungmenna. Ljósabekkir voru 1,5/1.000 íbúa höfuðborgarsvæðisins árið 1988 en voru 0,9/1.000 Íslendinga árið 2005 og fækkaði áfram. Nýgengi sortuæxla náði hápunkti í kringum árið 2005 en nýgengi annarra húðkrabbameina hækkaði stöðugt. Joinpoint aðhvarfsgreining sýndi að marktæk breyting varð á ljósabekkjanotkun eftir lagabreytinguna árið 2011. Ályktanir: Ljósabekkjanotkun Íslendinga hefur minnkað síðustu tvo áratugi en var líklega meiri fyrir aldamót þegar ljósabekkir voru fleiri á hverja 1.000 Íslendinga en þeir voru eftir aldamót. Þar sem ákveðinn, en óljós, biðtími er frá útsetningu til myndunar húðkrabbameina eru hugsanlega tengsl á milli ljósabekkjanotkunar og tíðni húðkrabbameina á Íslandi. Lagasetning leiddi einnig til minni ljósabekkjanotkunar meðal ungmenna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sandra Mist Úlfarsdóttir 2003-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50198
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50198