Back to search

University of Iceland

„Aldrei myndi ég kalla dagmömmu fagmann“: Upplifun og reynsla mæðra á daggæslu í heimahúsum og ungbarnaleikskólum í Reykjavík

Abstract

dc:description.abstract

Þjónusta og kerfi sem hafa það hlutverk að sinna börnum og foreldrum eru gríðarlega mikilvæg í velferðarsamfélagi. Að þessum kerfum þarf að hlúa og beita ríkjandi venjum og gagnrýnu hugarfari í takt við þróun samfélagsins. Markmið rannsóknarinnar er að skyggnst inn í upplifun og reynslu foreldra sem hafa reynslu af tveimur dagvistunarkerfum í Reykjavík, dagforeldrakerfinu og ungbarnaleikskólum/ungbarnadeildum með tilliti til farsældar barna, þar sem fagmennska leikur stórt hlutverk. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem notast var við samblöndu af markmiðsúrtaki (e. purposive sample) og hentugleikaúrtaki (e. convenience sample). Tekin voru hálfopin viðtöl við átta mæður sem eiga það sameiginlegt að hafa reynslu af tveimur dagvistunarkerfum í Reykjavík, dagvistun í heimahúsi, ungbarnaleikskólum eða sérstökum ungbarnadeildum leikskóla. Niðurstöðurnar sýndu að það sem skiptir forráðamenn mestu máli þegar kemur að daggæslu ungbarna eru þættir eins og gagnsæi á úthlutun plássa, öryggi, aðbúnaður, upplýsingaflæði, þroski, umhyggja og líðan barna. Þær töldu að fagmennska eða fagleg vinnubrögð í hverjum þessara þátta skipti miklu máli með tilliti til farsældar barna og í ljósi þeirra kjósa allar mæðurnar nema ein ungbarnaleikskóla í stað dagvistunar hjá dagforeldrum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Drífa Sveinbjörnsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49961
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49961

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Drífa Sveinbjörnsdóttir 1989-. „Aldrei myndi ég kalla dagmömmu fagmann“: Upplifun og reynsla mæðra á daggæslu í heimahúsum og ungbarnaleikskólum í Reykjavík. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49961