Back to search

University of Iceland

Eignaupptaka vegna barnaníðsefnis. Áhrif tækniþróunar og nýjunga á eignaupptöku í málum er varða vörslu barnaníðsefnis

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um eignaupptöku í málum er varða vörslu barnaníðsefnis og áhrif tækniþróunar og nýjunga þar á. Í því skyni er með almennum hætti fjallað um eignaupptöku og ákvæði VII. kafla A almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en farið er yfir sögulega þróun er varðar eignaupptöku og þær breytingar sem gerðar hafa verið á ákvæðum þar um til dagsins í dag. Samhliða er fjallað um alþjóðlegar skuldbindingar er varða upptöku og tengsl við ákvæði stjórnarskrár Íslands nr. 33/1944. Tilgangur og markmið eignaupptöku og þau takmörk sem hún sætir eru þá greind með hliðsjón af framangreindu. Að því loknu er fjallað um barnaníðsefni með almennum hætti og þá þróun sem hefur átt sér stað í málaflokkinum síðustu ár vegna tækniframfara. Í þeirri umfjöllun er farið yfir þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist er varða verndun barna og réttindi þeirra í samhengi við það efni sem er til umfjöllunar. Ákvæði 210. gr. a. almennra hegningarlaga er skoðað sérstaklega m.t.t. sögulegs aðdraganda og síðan gildandi réttar. Fjallað er um hugtakið vörslur sem þar er að finna og dómaframkvæmd greind sérstaklega í því sambandi. Samhengisins vegna er fjallað almennt um rannsókn mála er varða meðferð barnaníðsefnis hjá lögreglu og alþjóðlegt samstarf við slíkar rannsóknir. Í síðari hluta ritgerðarinnar eru efnin tvö sameinuð. Í fyrstu er gerð grein fyrir beitingu eignaupptöku í málum er varða vörslu barnaníðsefnis og er dómaframkvæmd krufin til hlýtar. Farið er yfir hvort og þá hvaða áhrif tækniframfarir hafa haft á slíka upptöku og metið hvort að breytingar á almennum hegningarlögum hafi breytt framkvæmdinni. Að endingu er umfjöllun um sérstöðu eignaupptöku í málum er varða vörslu barnaníðsefnis. Með framangreint fyrir augum er því næst fjallað um tækninýjungar og áskoranir sem þær hafa í för með sér er kemur að upptöku í umræddum málum. Farið er sérstaklega yfir skýjalausnir og álitaefni sem sú tækni vekur upp og varða eignaupptöku. Að sama skapi er gerð grein fyrir þeim áskorunum sem við koma gervigreind í því samhengi. Höfundur setur fram hugmyndir að framkvæmd eignaupptöku vegna vörslu eða annarrar meðferðar barnaníðsefnis þegar kemur að skýjalausnum og gervigreind með hliðsjón af þeirri umfjöllun sem fyrr er reifuð. Þá er í lok ritgerðarinnar gerð grein fyrir mögulegum áhrifum nýs frumvarps sem, þegar ritgerð þessi er skrifuð, er í samráðsgátt stjórnvalda. Í niðurstöðukafla er umfjöllun ritgerðarinnar dregin saman og þar með helstu niðurstöðum hennar gerð skil.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birta Júlíu Jónasdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49805
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49805

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Júlíu Jónasdóttir 2001-. Eignaupptaka vegna barnaníðsefnis. Áhrif tækniþróunar og nýjunga á eignaupptöku í málum er varða vörslu barnaníðsefnis. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49805