University of Iceland
Börn í skugga áfengis- og vímuefnaneyslu foreldra: Verndandi þættir sem stuðla að velferð og seiglu barna í slíku umhverfi
Abstract
dc:description.abstractFíkniefnaneysla, einkum áfengis- og vímuefnaneysla, er alþjóðlegt vandamál sem hefur ekki aðeins áhrif á þá einstaklinga sem í hlut eiga heldur einnig fjölskyldur þeirra og þá sérstaklega börn. Áfengis- og vímuefnaneysla foreldra getur truflað getu þeirra til að veita börnum öruggt og styðjandi umhverfi, sem getur orsakað margvísleg vitræn, tilfinningaleg og hegðunarvandamál. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þá verndandi þætti sem stuðla að heilbrigðum þroska og vellíðan hjá börnum sem alast upp á heimili þar sem áfengis- og vímuefnaneysla er ríkjandi. Ritgerðin er fræðileg heimildaritgerð þar sem stuðst er við fyrirliggjandi rannsóknir. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi einstakra eiginleika, fjölskyldulífs, ytri og innri þátta til að efla seiglu hjá þessum börnum. Að lokum gefa niðurstöður dýrmæta innsýn í hvernig börn í erfiðum aðstæðum geta blómstrað, með áherslu á inngrip og þjónustu sem getur aðstoðað bæði börn og foreldra við að sigrast á áskorunum sem áfengis- og vímuefnaneysla skapar. Til að takast á við vandann þarf heildræna nálgun sem beinist ekki aðeins að meðferð foreldra heldur einnig að því að veita börnum nauðsynleg stuðningskerfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Nanna Olga Jónsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49717
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49717