University of Iceland
Leiðtogafundur Evrópuráðsins á Íslandi: Tengslanet í krafti smæðarinnar
Abstract
dc:description.abstractRannsóknarritgerð þessi fjallar um tengslanet í opinberri stjórnsýslu í tengslum við undirbúning og framkvæmd leiðtogafundar Evrópuráðsins sem haldinn var í Hörpu, Reykjavík í maí árið 2023. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á það hvernig tengslanet þróast í litlu samfélagi eins og á Íslandi þegar stórir alþjóðlegir viðburðir eru undirbúnir. Fræðileg umfjöllun ritgerðarinnar byggir á kenningum Koliba, Meek og Zia um tengslanet innan opinberrar stjórnsýslu, kenningum í smáríkjafræðum og kenningum um skipulagsheildir eftir Mintzberg. Í ritgerðinni er að finna greiningu á því hvernig samstarfi var háttað á milli stofnana, ráðuneyta og einkaaðila við undirbúning fundarins. Áhersla er lögð á að leggja mat á hvernig smæð íslenskrar stjórnsýslu hafði áhrif á samstarfs- og skipulagsaðferðir, ákvarðanatökur og ábyrgðarskyldur innan tengslanetsins. Höfundur notaðist við eigindlegar rannsóknaraðferðir, eins og viðtöl og greiningu opinberra gagna til að fá dýpri innsýn í samstarfs- og skipulagsferlið. Smæðin í íslenskri stjórnsýslu gerði skipulagið auðveldara og stuðlaði það að beinum samskiptum milli þátttakenda. Tengslanetið sem myndaðist við undirbúning og framkvæmd fundarins flokkast sem stjórnsýslulegt tengslanet þar sem sérstakt samhæfingarteymi var sett á laggirnar sem stýrði verkefninu, en jafnframt byggði verkefnið á trausti, samstöðu og óformlegum samskiptum sem eru oft einkenni lítillar stjórnsýslu. Rannsóknin dregur einnig fram hvernig íslensk stjórnsýsla nýtir sér tengslanet sem stjórnunartæki við að takast á við umfangsmikil verkefni. Einnig sýnir hún fram á mikilvægi skýrrar ábyrgðar, samhæfingar og sveigjanleika í opinberum verkefnum á alþjóðavettvangi. Rannsóknin sýnir fram á það að íslensk stjórnvöld og stjórnsýsla getur aðlagað sig að krefjandi verkefnum með því að nýta styrkleikana sem liggja í smæðinni. Rannsóknin dregur einnig fram mikilvægi þess að vera með skýrar ábyrgðarkeðju, sveigjanleg vinnubrögð og skýra verkferla þegar kemur að því að skipuleggja alþjóðlega stórviðburði. Niðurstöður ritgerðarinnar geta gagnast stjórnvöldum, íslenskri stjórnsýslu, skipuleggjendum stórviðburða og þeim sem starfa í opinberri stjórnsýslu við að þróa áfram árangursríkar aðferðir varðandi samstarf í náinni framtíð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Katrín Ósk Ásgeirsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49623
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49623