Back to search

University of Iceland

Innkaup sveitarfélaga. Tilviksrannsókn á innkaupastýringu sveitarfélaga.

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að skoða innkaup sveitarfélaga á Íslandi. Markmiðið með henni var aðallega að skoða hvernig innkaupastýringu væri háttað í sveitarfélögum. Horft er þá sérstaklega til hversu virk innkaupastýring er til staðar og hvort að hún leiði til hagkvæmni í rekstri. Skoðað var sérstaklega hvort stöðugildi innkaupaðila væri til staðar og þá hvort munur væri á innkaupastýringu sveitarfélagsins ef staðan væri. Rammasamningar voru skoðaðir sem stjórntæki hins opinbera og nýting þeirra skoðuð nánar meðal sveitarfélaga. Þær fræðilegu kenningar sem voru til grundvallar í ritgerðinni eru um opinbera stefnumótun, nýskipan í opinberum rekstri og samninga sem stjórntækis. Aðferðafræði rannsóknarinnar var blönduð leið en bæði var lögð fyrir spurningakönnun til allra sveitarfélaga ásamt því að tekin voru viðtöl við starfsmenn fjögurra sveitarfélaga í framhaldinu til að fá nánari innsýn í viðfangsefnið. Gögn voru greind og borin saman við þær fræðilegu kenningar sem lágu að baki ritgerðinni. Niðurstöður leiða í ljós að mikill munur er á milli sveitarfélaga hversu mikil stýring á sér stað á innkaupum. Hjá viðmælendum kom í ljós að ánægja er með þá vegferð að leggja áherslu á innkaupamál og eru fleiri sveitarfélög farin að horfa til þess þáttar rekstursins til að ná fram aukinni skilvirkni og hagkvæmni. Þá var einnig niðurstaða að rammasamningar eru nýttir í talsverðum mæli af sveitarfélögum og er nokkur ánægja meðal svarenda með þá samninga. Einnig koma fram að óánægju er að gæta meðal viðmælenda vegna breytinga sem nýverið voru gerðar á umsýslu með rammasamningum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristjana Helga Ólafsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49393
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49393

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristjana Helga Ólafsdóttir 1978-. Innkaup sveitarfélaga. Tilviksrannsókn á innkaupastýringu sveitarfélaga.. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49393