Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að kanna og leggja mat á áhrif stjórnunarnámskeiðs á vegum sveitarfélags á leiðtogahætti og faglega þróun stjórnenda innan hins opinbera. Eins var miðað að því að bera kennsl á áskoranir og þörf á starfsþróun sem þessir stjórnendur upplifðu áður en þeir tókust á við námið og kanna á hvaða hátt þeir upplifðu að námið svaraði þessum þörfum. Einnig komu þátttakendur með tillögur að úrbótum að náminu. Notast var við eigindlega aðferðafræði við framkvæmd rannsóknarinnar. Þátttakendur voru 11 talsins og svöruðu þeir spurningalista með opnum spurningum áður en þeir tóku þátt í náminu. Eftir að námi lauk voru hálfopin viðtöl tekin við þátttakendur í rannsókninni. Niðurstöður benda til að leiðtogaþjálfun hafi jákvæð áhrif á störf þátttakenda. Þeir upplifðu sig öruggari sem stjórnendur og sumir sáu breytingu í eigin hegðun t.d. þegar kom að samskiptum við starfsfólk. Út frá niðurstöðum er hægt að draga þá ályktun að þátttakendur öðluðust bætta færni sem leiðtogar með aukinni meðvitund í viðbrögðum og ákvarðanatöku. Einnig kom í ljós að þátttakendum fannst gagnlegt að kynnast öðrum stjórnendum og mynda tengsl við aðra innan sveitarfélagsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Baldursdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48994
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48994