Back to search

University of Iceland

Ófrjósemi og úrræði. Upplifun kvenna af ítrekuðum tæknifrjóvgunum á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Að jafnaði er talað um að eitt af hverjum tíu pörum glími við ófrjósemi og er þessi ritgerð tileinkuð þeim hópi. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsókn á átta konum sem ganga hafa þurft í gegnum ítrekaðar tæknifrjóvganir á Íslandi. Markmiðið var að skoða upplifun þeirra á meðferðunum lið fyrir lið jafnhliða upplifun á viðmóti starfsfólks í sinn garð. Einnig að athuga hvort þeim lögum sem kveða á um að þeir sem ganga þurfa í gegnum tæknifrjóvgun sé boðin ráðgjöf eða sálfélagslega aðstoð félagsráðgjafa samhliða meðferð og reynslu þeirra af slíkri meðferð. Niðurstöðurnar gáfu til kynna að almenn upplifun kvennanna af viðmóti starfsfólks var mjög jákvæð. Upplifanir af meðferðunum einkenndust af miklum tilfinningasveiflum á milli svartsýni og bjartsýni. Við nánari skoðun virðist sem að upplifunin af viðmóti starfsfólks verði almennt neikvæðari eftir því sem erfiðleikarnir í meðferðunum urðu meiri. Þessar meðferðir reyndust konunum almennt mjög erfiðar og oft á tíðum virtist sem að eftir árangurslausa meðferð sætu þær einar eftir með vanlíðan sína. Í tilfellum þessara átta kvenna virðist sem ráðgjöf til þessa hóps sé ekki framfylgt og má af niðurstöðum draga þá ályktun að brotalöm sé á ráðgjöf og sálfélagslegum stuðningi samhliða tæknifrjóvgunarmeðferðum hér á landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Lóa Aradóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4899
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4899

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Lóa Aradóttir 1976-. Ófrjósemi og úrræði. Upplifun kvenna af ítrekuðum tæknifrjóvgunum á Íslandi. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4899