Back to search

University of Iceland

Kennsla á hinsegin sögu: verkefnabanki um hinsegin sögu fyrir unglingastig

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í grunnskólakennslu með áherlsu á samfélagsgreinar. Verkefnið er saman sett af fræðilegri greinagerð og kennsluverkefnum. Verkefnin eru fjölbreytt og tengjast öll saman sem ein heild en fjalla um mismunandi staði og tímabil í sögu hinsegin fólks. Því gæti hentað kennurum vel að flétta verkefnin inn í kennslu samfélagsgreina og tengja við þætti eins og jafnrétti, sögu, lífsleikni, menningarlæsi o.fl. Það er nokkuð ljóst að auka þarf fjölbreytni í sögukennslu sem hefur um árabil verið svolítið einsleit. Mikilvægt er að fjalla um alls konar sögu og tryggja að koma inná sem flest svið til þess að t.d. mæta þeim margbreytilega nemendahópi sem við stöndum frammi fyrir í dag. Tilgangur þessa lokaverkefnis var að búa til kennsluverkefni sem má nýta í kennslu um sögu hinsegin fólks og hinseginleikann. Draga úr fáfræði og fordómum í garð hinsegin fólks og fjalla um sögu þeirra á jákvæðan og uppbyggjandi hátt í þeim tilgangi að nemendur tileinki sér virðingu og þekkingu á sögu hinsegin fólks og hinseginleikanum. Í greinargerð er fjallað rannsóknir á upplifun hinsegin nemenda í skólakerfinu, skóla án aðgreiningar með hinsegin nemendur til hliðsjónar, mikilvægi þess að fjalla um hinsegin sögu, hinseginleikann, tengsl við aðalnámskrá grunnskóla og í viðauka eru svo verkefnin sjálf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aníta Hrund Hjaltadóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48526
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48526

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aníta Hrund Hjaltadóttir 1998-. Kennsla á hinsegin sögu: verkefnabanki um hinsegin sögu fyrir unglingastig. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48526