Back to search

University of Iceland

Textílspilið : spil sem eflir sértækan orðaforða í textíl

Abstract

dc:description.abstract

Hugmyndin að námspilinu kviknaði á 2. ári í kennaranáminu þegar höfundur var í æfingakennslu og varð vör við að nemendur í textíl höfðu nánast engan hugtakaskilning. Eitt af hæfniviðmiðum fyrir textílmennt í Aðalnámskrá grunnskóla (2013) er einmitt að nemendur geti notað hugtök sem tengjast greininni. Orð og hugtök sem tengjast textílgreininni eru mörg hver flókin og þarfnast þess vegna ætíð útskýringa þar sem þau eru ekki hluti af hinu daglega umhverfi barna. Höfundur vildi leggja áherslu á finna leið til að bæta úr þessu, leið sem hentar börnum, en spil og leikir eru eitthvað sem höfðar til allra barna sem og fullorðinna. Markmiðið var að búa til spil, bæði í formi ljósmynda og skýringartexta, sem myndi vera fræðandi og skemmtilegt á sama tíma. Markmiðið var einnig að hægt væri að spila það á að minnsta kosti 3-4 ólíka vegu þannig að það myndi ná til stærri hóps. Niðurstaðan er námsspil undir heitinu Textílspilið. Námsspil sem eflir og eykur orðaforða og hugtakaskilning nemenda í textíl. Spilið samanstendur af 64 spjöldum, 32 myndaspjöld og 32 textaspjöld. Bakhlið spjaldanna er svo skreytt öllum þeim orðunum sem útskýrð eru í spilinu. Spjöldin eru í sömu stærð og hefðbundinn spilastokkur. Hugmyndir að útfærslum eru sambærilegar spilum á borð við Bingó, Samstæðuspil, Veiðimann og Alias. Höfundur prófaði spilin ásamt starfandi textílkennurum í tveimur skólum með mismunandi nemendahópum og vakti það mikla lukku meðal nemenda. Spilaaðferðirnar voru prófaðar með ólíkum aldurshópum og kom þar vel í ljós að forkunnátta í textíl var nemendum til gagns. Með námsspilinu, þar sem annars vegar eru ljósmyndir af textíláhöldum og hins vegar útskýringatexti með heiti hlutarins, eru nemendur hvattir til að skoða myndir, lesa texta og para saman það sem við á. Spilið virkar sem kennsluefni við kennslu nýrra hugtaka og til að auka skilning á virkni áhalda. Auk þess nýtist það nemendum sem „afþreying“ í kennslustundum, jafnvel án afskipta kennarans og því væri um eins konar sjálfsnám að ræða. Á þann hátt er Textílspilið einnig nýmæli í textílkennslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristbjörg Sunna Hafberg 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/48389
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48389

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristbjörg Sunna Hafberg 1983-. Textílspilið : spil sem eflir sértækan orðaforða í textíl. 2024. https://hdl.handle.net/1946/48389