Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni var leitast við að finna verðmætar afurðir úr fræjum Lupinus nootkatensis (Alaska lúpínunnar). Ýmsar rannsóknir með tilliti til verðmætasköpunar hafa verið gerðar á hinum fjölmörgu lúpínutegundum skyldum L. nootkatensis. Þessar rannsóknir gefa góð fyrirheit um að svipaðir eiginleikar séu í L. nootkatensis. Leitast var við að einangra hreina olíu úr fræjunum með Soxhlet undir þrýstingi, þar sem þessi aðferð er líklegri til að skila hærri nýtni á lífskilvirkum efnum. Koltvísýringur var notaður sem leysir við að aðskilja olíuna úr fræjunum. Unnið var með fastan þrýsting og hitastig, en tímalengd á einangrunarferlinu var breytileg. Einnig var unnið með tvo mismunandi grófleika á fræjunum þar sem nýtnin var skoðuð. Leitast var við að nota umhverfisvæna aðferð til að vinna olíu úr fræjunum með tilliti til matvæla-, lyfja- og snyrtivöruframleiðslu. Einnig var athugað hvort alkalóíðar kæmu til með að skila sér yfir í fræolíuna. L. nootkatensis var fyrst kynnt til sögunnar á Íslandi árið 1945 með því að vinna á landeyðingu af sökum náttúrulegra afla. Í kjölfarið dreifði L. nootkatensis sér um Ísland og er af mörgum talin vera illgresi og ágeng tegund, þar sem hún tekur algjörlega yfir þau landssvæði þar sem að hún nær að skjóta rótum. Aðgengi að hráefni skipti miklu máli fyrir verkefnið með tilliti til hugsanlegrar magnframleiðslu. Notast var við sérsmíðað tæki sem notar hefðbundið Soxhlet, sem vinnur undir þrýstingi. Það fengust mjög skírar niðurstöður úr verkefninu með tilliti til olíu einangrunar og mælingar á alkalóíðum sem að voru tveir þýðingarmestu þættirnir. Mælanlegt magn af olíu fékkst með þessari einangrunar aðferð ásamt því mældust alkalóíðar í olíunni eftir einangrun. Einnig voru hámarks heimtur skoðaðar með tilliti til rúmáls og tíma lengdar einangrunar. Fræ mulin með rúmmálinu 200-400 µm gáfu um helmings betri heimtur en fræ mulin í 1000 µm. Þegar hámarks heimtur voru skoðaðar með tilliti til tímalengdar þá komu 360 mín best út af þeim þrem tímalengdum sem voru mældar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Agnar Jónsson 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47232
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47232