Back to search

University of Iceland

Um aðferðir til að mæla misáttun eðlisviðnáms í þunnum húðum

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða aðferðir til að mæla misátta eðlisviðnám í þunnum húðum. Skoðaðar eru aðferðirnar: Aðferð Montgomery, aðferð Price og aðferð Kleiza. Þær byggjast allar á fjögurra punkta mælingu van der Pauw, sem er mikið notuð í hálfleiðara tækni. Niðurstöður aðferðanna eru metnar fyrir fimm mismunandi sýni, þrjú einsátta og tvö misátta permalloy sýni. Ýmsir gallar fylgja notkun aðferðanna, til dæmis hafa aðferðirnar tiltölulega háa óvissu sem kemur frá lengdarmælingunum. Áhrif staðsetningar fimmta snertiskeytisins í aðferð Kleiza er skoðuð og hentugasta staðsetningin er fundin til að vera miðja lengri hliðarinnar. Ætlunin er að sjá hvort hægt er að nota þessar aðferðir til að skoða meðal annars áhrif segulhrifa á viðnámsmisáttun. Hins vegar virðast þessar aðferðir ekki vera hentugar til að skoða seguláhrif vegna þess að forsendur aðferðanna gætu verið brostnar í segulsviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hálfdán Ingi Gunnarsson 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47157
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47157

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hálfdán Ingi Gunnarsson 2002-. Um aðferðir til að mæla misáttun eðlisviðnáms í þunnum húðum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47157