Abstract
dc:description.abstractInngangur: Blóðgjöf er ein af mikilvægum stoðum heilbrigðiskerfisins og tryggir sjálfboðaliðastarf blóðgjafa aðgengi að blóði allt árið. Þessi rannsókn miðar að því að skoða þróun á meðal blóðgjafa Íslands frá 2013 til 2023 með tilliti til aldurs, kyns og blóðflokks, sem og að finna hlutfall þeirra sem nýskrá sig og gefa blóð í fyrsta sinn. Efniviður og aðferðir: Gerð er afturskyggn ferilrannsókn, þar sem lýst er heilblóðgjafahópi Blóðbankans og nýskráðum blóðgjöfum á árunum 2013-2023. Gögn um blóðgjafa voru sótt í ProSang, gagnagrunni Blóðbankans. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu er fjöldi virkra blóðgjafa að meðaltali 5.901 á ári, árið 2013 koma 6.457 virkir gjafar og árið 2023 5.811 virkir gjafar, ekki tölfræðilega marktæk lækkun. Að meðaltali hafa 2,65% af Íslendingum á blóðgjafaaldri gefið heilblóð a.m.k. einu sinni hvert ár. Hlutur karla, er marktækt hærri en hjá konum eða aðmeðaltali67,9%(66,7%-69,1%)boriðsamanvið 32,1%(30,9%-33,3%)(P<0,001). Hlutfall kynjanna er jafnt þegar kom að nýskráningum, 50,5% (48,3%-52,6%) karlar og 49,5% (47,4%-51,7%) konur. Meðalaldur virkra heilblóðgjafa er 40.8 ár (39,3-42,2), meðan meðalaldur nýskráninga er 32,7 ár (30,2-35,2). Að meðaltali koma 39,7% (34,1%-45,4%) af nýskráðum gjöfum aftur og gefa sína fyrstu heilblóðgjöf. Ályktanir: Í dag er Ísland sjálfbært í söfnun og framleiðslu blóðhluta, með heildarfjölda einstaklinga sem gefa heilblóð í kringum 6.000 einstaklinga á ári síðustu ár. Landsmönnum fer fjölgandi og er aldurssamsetning þjóðarinnar að breytast. Með hækkandi hlutfalli eldri einstaklinga má gera ráð fyrir aukinni blóðhlutanotkun og lækkandi hlutfalli á blóðgjafaaldri. Áhersla þarf að vera lögð á að fá hærra hlutfall ungra blóðgjafa og auka hlut kvenna til þess að geta haldið heilblóðgjafahópnum nægilega stórum og fjölbreyttum, og veitt nauðsynlega og sjálfbæra heilbrigðisþjónustu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jenný Jónsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47147
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47147