University of Iceland
Hagnýting mælitækis (ICE-FPSQ) í fjölskylduhjúkrun sem metur fjölskyldustuðning. Fræðileg samantekt.
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Rannsóknir sýna að veikindi einstaklings í fjölskyldu hafa áhrif á alla fjölskyldumeðlimi. Hjúkrunarfræðingar þurfa að geta veitt viðeigandi meðferð sem mætir þörfum fjölskyldunnar í heild sinni. Því er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk geti metið á nákvæman og markvissan hátt upplifun fjölskyldunnar á stuðningi sem þeim hefur verið veittur. Tilgangur: Að kanna hvernig fjölskyldustuðningsspurningalistinn hefur verið notaður í rannsóknum og að greina frá áhrifum stuðnings á útkomur sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Jafnframt að greina frá þeim fjölskylduhjúkrunarmeðferðum sem notaðar eru innan þeirra rannsókna til að stuðla að bættri fjölskylduvirkni og lífsgæðum. Aðferð: Fræðileg samantekt þar sem gagna var aflað í gegnum gagnagrunna PubMed, CINAHL, Scopus og Google Scholar. Stuðst var við PICOTS viðmið við þróun rannsóknarspurninga. Allar greinar þurftu að uppfylla inntökuskilyrði s.s. að vera rannsókn framkvæmd á árunum 2014-2024, að vera skrifuð á ensku og notast við matstækið ICE-FPSQ í rannsóknum sínum. PRISMA flæðirit var notað til þess að lýsa heimildaleitinni. Rannsóknir voru síðan flokkaðar eftir eiginleikum þeirra og niðurstöður voru greindar og samþættar. Niðurstöður: Gagnaöflun leiddi í ljós sex mismunandi íhlutanir sem hægt er að flokka niður í annars vegar stuðnings- og meðferðarsamræður og hins vegar fræðslumeðferðir. Íhlutanirnar fengu foreldrar barna með svefnraskanir og geðraskanir, aðrar íhlutanir fengu fjölskyldur langveikra og fjölskyldur sjúklinga í bráðafasa. Íhlutanirnar voru veittar yfir mislangt tímabil en sú íhlutun sem varði lengst var veitt á 4 mánaða tímabili. Í íhlutunum þar sem markmiðið var að kanna upplifaðan stuðning meðal fjölskyldumeðlima, og mæling var gerð fyrir og eftir íhlutun, þá kom fram marktækt hærri upplifaður stuðningur meðal fjölskyldumeðlima eftir íhlutunina. Marktækur munur er á milli ólíkra fjölskyldutengsla, aldurs og menntunarstigs fjölskyldumeðlima. Að lokum sýndu fjórar rannsóknir sem próffræðilega mældu ICE-FPSQ við þýðingu hans að hann væri áreiðanlegur og réttmætur. Ályktun: Sjúklingar og fjölskyldur þeirra hafa gagn af stuðningi veittum af hjúkrunarfræðingum. Höfundar velta fyrir sér þörf á aukinni áherslu fjölskylduhjúkrunar innan hjúkrunarfræðistéttarinnar, þar sem fjölskyldur upplifa almennt takmarkaðan stuðning á almennum og sérhæfðum deildum heilbrigðisstofnana. Þörf er á rannsóknum á ICE-FPSQ sem þróa viðmið um gæði stuðnings út frá honum þannig að túlkun á niðurstöðum ICE-FPSQ sé ekki háð mati einstaklingsins heldur byggð á stöðluðum gögnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Hlynur Hafliðason 1985-
- Gunnhildur Jónsdóttir 1985-
- Kristján Oddur Kjartansson 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47056
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47056