Back to search

University of Iceland

Framtíð ráðningarferlisins. Notkun gervigreindar í ráðningarferli fyrirtækja á Íslandi og viðhorf ráðningaraðila til tækifæra og takmarkana gervigreindar

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu og sjónarmið ráðningaraðila á Íslandi á notkun gervigreindar í ráðningarferli, með það að leiðarljósi að fá betri innsýn í núverandi notkun gervigreindar í ferlinu. Sérstök áhersla var lögð á að greina tækifæri og áskoranir sem taldar eru fylgja gervigreind, að mati ráðningaraðila. Sjónum var einnig beint að hugsanlegri hlutdrægni sem tæknin getur haft í för með sér. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem hálfopin viðtöl voru tekin við tíu ráðningaraðila fyrirtækja hérlendis. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að notkun gervigreindar á fullri sjálfvirkni í ráðningarferli er fátíð. Hins vegar studdust flestir ráðningaraðilar við gervigreindartól við ýmis verkefni í ráðningarferlinu. Ráðningaraðilar viðurkenndu tækifæri sem og áskoranir sem taldar eru fylgja notkun gervigreindar. Viðhorf þeirra til notkun gervigreindar í ráðningarferli var einnig breytilegt eftir því hvaða stig í ráðningarferlinu um var að ræða. Eftirfarandi rannsókn veitir innsýn í lítið rannsakað viðfangsefni hér á landi og stuðlar þannig að aukinni þekkingu á notkun gervigreindar í ráðningarferli fyrirtækja á Íslandi. Að auki veitir eftirfarandi rannsókn ráðningaraðilum tækifæri til að auka við skilning og þekkingu þeirra á gervigreind og notkun hennar í ráðningarferli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46935
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46935

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir 1997-. Framtíð ráðningarferlisins. Notkun gervigreindar í ráðningarferli fyrirtækja á Íslandi og viðhorf ráðningaraðila til tækifæra og takmarkana gervigreindar. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46935