University of Iceland
Um 1. mgr. 26. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla. Friðhelgi einkalífs, hlutlægni og nákvæmni í skilningi ákvæðisins
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um 1. mgr. 26. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla. Ákvæðið kveður á um að fjölmiðlaveitur skuli halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi. Þær skuli virða mannréttindi og jafnrétti, og einnig friðhelgi einkalífs nema lýðræðishlutverk þeirra og upplýsingaréttur almennings krefjist annars. Þar að auki kveður ákvæðið á um að fjölmiðlaveitur gæti þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni í fréttum og fréttatengdu efni, og gæti þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna. Þeir efnisþættir ákvæðisins sem fjallað er um í ritgerðinni snúa að skyldunni til að virða friðhelgi einkalífs nema undantekningar ákvæðisins eigi við, og kröfunnar um hlutlægni og nákvæmni í fréttum og fréttatengdu efni. Fyrst er fjallað um hlutverk fjölmiðla, bæði með almennum hætti en einnig með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem mótast hafa í íslenskri dómaframkvæmd og framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Því næst er fjallað um tjáningarfrelsi, friðhelgi einkalífs og skörun þessara réttinda. Í því sambandi er einnig litið til sérstakra sjónarmiða um tjáningarfrelsi fjölmiðla, í ljósi sérstaks hlutverks þeirra við að upplýsa almenning. Þá er farið yfir efni laga nr. 38/2011 um fjölmiðla, hlutverk fjölmiðlanefndar og Blaðamannafélags Íslands, einkum siðanefndar hennar. Þá er litið til 1. mgr. 26. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla. Farið er yfir tilurð ákvæðisins, breytingar sem urðu á ákvæðinu í meðförum þingsins, bótaskyldu sem komið getur til skoðunar vegna slíkra brota og loks beitingar ákvæðisins í réttarframkvæmd að því leyti sem við kemur efnisþætti ákvæðisins sem hefur að gera með friðhelgi einkalífs, auk þess sem litið er til úrlausna fjölmiðlanefndar um þetta sama efni. Því næst er farið yfir seinni efnisþáttinn sem fjallað er um í ritgerðinni, sem leggur þá skyldu á fjölmiðla að gæta hlutlægni og nákvæmni við vinnslu frétta og fréttatengds efnis. Fjallað er um uppruna skyldunnar og inntak, auk þess sem beiting hennar verður könnuð með sama hætti og í kaflanum á undan. Loks er í ritgerðinni að finna niðurstöðukafla þar sem ályktanir ritgerðarinnar og hugleiðingar höfundar eru dregnar saman.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vésteinn Örn Pétursson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46852
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46852