Back to search

University of Iceland

Stjórnkerfi fjöleignarhúsa

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að fjalla um einingarnar sem byggja upp kerfi sem höfundur kýs að kalla stjórnkerfi fjöleignarhúsa. Samspilið milli eininganna og þau lög og reglur sem að gilda um stjórn fjöleignarhúsa. Í grundvallaratriðum skiptist ritgerðin í þrjá hluta þó að kaflarnir séu fleiri. Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er gert grein fyrir eignaskipulagi fjöleignarhúsa. Umfjöllun er í þeim hluta ritgerðarinnar um hvað fjöleignarhús eru og stutt kynning á lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994 ásamt kærunefnd húsamála. Almennar reglur um sérstaka sameign eru skoðaðar og hvernig þær tengjast fjöleignarhúsalögunum. Ásamt því eru hugtökin séreign, sameign allra og sameign sumra rannsökuð og hver munurinn á þeim er í grundvallaratriðum en það hefur mikið að segja um réttan vettvang fyrir ákvarðanatöku. Einingarnar sem byggja upp stjórnkerfi fjöleignarhúsa eru kynntar ásamt réttindum og skyldum sameigenda. Annar hluti ritgerðarinnar og meginþungi hennar snýr að því að rannsaka hverjar þessar einingar eru sem byggja upp þetta svokallaða stjórnkerfi fjöleignarhúsa og hvaða reglur gilda um þær. Einingarnar eru húsfélög, húsfélagsdeildir, félagsskapur í skilningi 2. mgr. 3. gr. laga fjöleignarhúsalaganna og rekstrarfélög. Ítarlega er kannað hvert er hlutverk, tilvist, valdsvið og afmörkun eininganna. Ásamt þessu er gerður samanburður á þessum einingum og hvenær málefni heyri undir þær, þá sérstaklega varðandi húsfélög og húsfélagsdeildir. Töluverðu máli skiptir að afmarka álitaefnið, sameignarformið og í kjölfarið meta álitaefnið út frá ólíkum sjónarhornum því ákvörðun tekin af rangri einingu, á röngum vettvangi, getur haft þau áhrif að hún sé óbindandi og jafnvel bótaskyld. Í þriðja hluta ritgerðarinnar er litið til hvernig ákvarðanatöku er háttað við stjórn fjöleignarhúsa. Fjöleignarhúsalögin hafa að geyma ítarlegar form- og efnisreglur sem tilgreina hvernig ákvarðanatöku um hin ýmsu málefni skuli háttað. Þrátt fyrir þessi ítarlegu ákvæði er að finna glufur þar sem myndast getur ágreiningur meðal sameigenda. Í þessum hluta ritgerðarinnar er einnig í tengslum við umfjöllun um ákvarðanatöku vikið að ábyrgð stjórnar húsfélaga og stjórnarmanna. Einnig ábyrgð húsfélagsins inn á við og út á við og þegar seilst er utan valdsviðs viðkomandi aðila sem taka ákvarðanir. Að lokum eru helstu niðurstöður ritgerðarinnar dregnar saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjar Steinn Haraldsson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46841
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46841

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Brynjar Steinn Haraldsson 1998-. Stjórnkerfi fjöleignarhúsa. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46841