Back to search

University of Iceland

Ávinningur og áskoranir við fjarvinnu opinberra starfsmanna

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um innleiðingu fjarvinnu innan opinberra stofnana á meðan á COVID-faraldrinum stóð og í kjölfar hans. Markmiðið með rannsókninni var að kanna viðhorf og reynslu opinberra stjórnenda af fjarvinnu, hver sé ávinningur af slíku vinnufyrirkomulagi og áskoranir við það. Rætt var við stjórnendur opinberra stofnan varðandi framtíðarsýn þeirra á fjarvinnu innan þeirra stofnana sem þeir eru í forsvari fyrir. Byggt er á aðferðafræði eigindlegra rannsóknaraðferða. Tekin voru hálfopin viðtöl við sex stjórnendur innan meðalstórra og stórra stofnana. Þetta voru þrír forstöðumenn (æðstu stjórnendur), tveir mannauðsstjórar og einn skrifstofustjóri ráðuneytis, allt fólk sem kemur að stjórnun mannauðsmála. Helsti ávinningur af fjarvinnu, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar, fólst í auknum sveigjanleika fyrir starfsfólkið og betra jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Helstu áskoranir beindust að því að tryggja skilvirka vinnu, upplýsingamiðlun og árangursrík samskipti á milli starfsfólksins. Sýndi rannsóknin jafnframt fram á að stuðningur stjórnenda, traust og frammistaða voru áhrifamiklir þættir varðandi hagræði og árangur fjarvinnufyrirkomulags innan stofnananna. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna um viðfangsefnið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alda Björk Sigurðardóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46785
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46785

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alda Björk Sigurðardóttir 1992-. Ávinningur og áskoranir við fjarvinnu opinberra starfsmanna. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46785