Back to search

University of Iceland

Meðalgönguaðild samkvæmt 20. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991

Abstract

dc:description.abstract

Í 20. gr. eml. er að finna heimild til handa þriðja manni til þess að ganga inn í dómsmál annarra. Meginskilyrði fyrir því að þriðji maður geti nýtt sér þessa heimild er að úrslit máls skipti hann máli að lögum. Ákvæðið hljóðar svo: Þriðja manni er heimilt að ganga inn í mál annarra ef úrslit þess skipta hann máli að lögum. Skal hann þá stefna báðum eða öllum upphaflegu aðilunum og gera kröfu um að honum verði leyfð meðalgangan og dæmt sakarefnið eða dómur annars felldur þannig að réttur hans verði verndaður. Þá reglu sem finna má í 20. gr. eml. er efnislega sú sama og var í 50. gr. eldri laga um meðferð einkamála í héraði nr. 85/1936. Í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 85/1936 kemur fram að tvö tilvik meðalgöngu geta komið til. Annars vegar aðalmeðalganga og hins vegar aukameðalganga. Í aðalmeðalgöngu felst að sá sem gengur inn í mál með slíkum hætti gerir kröfu um að fá ákveðna hagsmuni dæmda sér sjálfum. Þegar um aukameðalgöngu er að ræða tekur þriðji maður undir kröfur annars hvors upphaflega aðila í því skyni að réttur hans verði verndaður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðmundur Sæmundsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4644
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4644

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðmundur Sæmundsson 1985-. Meðalgönguaðild samkvæmt 20. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4644