Back to search

University of Iceland

Áfallamiðuð nálgun í fangelsum: félagsráðgjafar og störf þeirra með föngum

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni til BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Snýr viðfangsefni ritgerðarinnar að áfallamiðaðri nálgun (e. trauma-informed care/approach) í fangelsum. Fjallað verður um stöðu réttarkerfisins á Íslandi í dag og lögð verður áhersla á aðkomu félagsráðgjafa. Markmiðið er að gera grein fyrir áfallamiðaðri nálgun í fangelsum og segja frá hvernig nálgunin getur stuðlað að betrun. Einnig að segja frá hvaða þjónusta er í fangelsum hérlendis og fjalla um hlutverk félagsráðgjafa í því samhengi. Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar: Hvað felst í áfallamiðaðri nálgun í fangelsum og getur sú nálgun stuðlað að betrun fanga? og Hvert er hlutverk félagsráðgjafa innan fangelsa hérlendis? Á Íslandi árið 2022 voru 88,1% af 149 afplánunarrýmum nýtt. Fortíð dómþola og áföll geta spilað stóran þátt í afbrotahegðun, er því mikilvægt að unnið sé úr þeim á viðeigandi hátt. Þar sem langflestir einstaklingar verða fyrir áfalli á lífsleið sinni og geta þau haft misalvarlegar afleiðingar, sumir þróa með sér áfallastreituröskun á meðan aðrir gera það ekki. Rannsóknir hafa sýnt að áfallamiðuð nálgun henti vel til að draga úr eða koma í veg fyrir endurkomu í fangelsi auk þess að stuðla að betrun. Félagsráðgjafar Fangelsismálastofnunar eru í lykilhlutverki hvað varðar betrun dómþola og endurhæfingu þeirra. Einnig verður komið inn á kenningar þessu tengdu. Niðurstöður sýna fram á að áfallamiðuð nálgun er talin sérlega hentug innan réttarkerfisins til að draga úr endurkomu dómþola og stuðla að betra og öruggara samfélagi fyrir alla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Svandís Lilja Jónasdóttir 2000-
  • Aþena Lind Vestmann Ágústsdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46431
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46431

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svandís Lilja Jónasdóttir 2000-; Aþena Lind Vestmann Ágústsdóttir 2000-. Áfallamiðuð nálgun í fangelsum: félagsráðgjafar og störf þeirra með föngum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46431