Back to search

University of Iceland

Ull er gull: Lopapeysan við upphaf 21. aldar

Abstract

dc:description.abstract

Með þessari rannsókn er ætlunin að leita svara við því hvers vegna íslenska lopapeysan varð svo vinsæl í byrjun tuttugustu og fyrstu aldar sem raun ber vitni. Í því skyni voru tekin viðtöl við fimmtán Íslendinga sem koma að viðfangsefninu með mismunandi hætti. Greining á áherslum þeirra og samlestur við hugmyndir ólíkra fræðimanna leiddi af sér eftirfarandi útfærslu. Efninu er skipt niður í fjóra kafla auk inngangs. Sá fyrsti greinir frá upphafi lopaprjóns og gefur yfirlit yfir sögu lopapeysunnar. Annar kafli ræðir hana út frá hugtakinu hefð og hvernig fólkið hefur tekið lopapeysuhefðina í sína þjónustu eins og hverja aðra alþýðuhefð. Í þriðja kafla er fjallað um lopapeysuna í ljósi hugtaksins handverk. Þar beinist athyglin að prjónakonunum sem endurskapa og móta hefðina. Fjórði og síðasti kaflinn fæst svo við að greina peysuna sem flík. Þar er notkun peysunnar rædd, hverjir nota hana og hvernig. Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er sú að Íslendingar hafi undanfarin ár fundið hjá sér þörf til að endurskilgreina sjálfsmynd sína á tímum hnattvæðingar. Áherslan á þjóðernið og þjóðina er áberandi í þessu sambandi. Lopapeysan hefur reynst notadrjúg í þeim tilgangi því hún vísar í hið staðbundna og þjóðlega í gegnum íslensku ullina. Ullin skipar sérstakan sess í hugum Íslendinga sem virðist síst léttvægari nú um stundir en oft áður í sögu þjóðarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Soffía Valdimarsdóttir 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4613
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4613

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Valdimarsdóttir 1968-. Ull er gull: Lopapeysan við upphaf 21. aldar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4613