Back to search

University of Iceland

Ávinningur útiveru fyrir ungmenni : hugmyndir fyrir fagfólk og foreldra til að auka útiveru ungmenna

Abstract

dc:description.abstract

Meirihluti heimsins er heltekinn af símunum sínum, kyrrseta eykst og útivera minnkar. Börn og ungmenni í dag virðast hafa minni tengsl við náttúruna í samanburði við fyrri kynslóðir sem notuðu ekki snjalltæki líkt og síma, tölvur eða sjónvörp í jafn ríku mæli. Þá átti náttúran stóran þátt í æskunni en í dag eru það snjalltækin sem skipa æ stærri sess. Meginmarkmið verkefnisins er að varpa ljósi á mikilvægi útiveru og hvernig mismunandi hagsmunaaðilar spila hlutverk í að hvetja eða letja til útiveru. Settar fram tillögur um hvernig hægt er að hvetja ungmenni til aukinnar útivistar. Verkefninu til stuðnings eru ýmsar fræðilegar greinar sem greina meðal annars frá því að verja tíma í náttúrunni hefur jákvæð áhrif á andlega sem og líkamlega heilsu einstaklinga. Að verja tíma í náttúrunni fyrir ungmenni hefur ávinning fyrir m.a. þroska, vellíðan, heilsu og bætta einbeitingu. Ungmenni í dag glíma við heilsufars og geðræn vandamál sem hægt væri að minnka með aukinni útiveru og meiri snertingu þeirra við náttúruna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Viktoría Ásgeirsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45668
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45668

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Viktoría Ásgeirsdóttir 1998-. Ávinningur útiveru fyrir ungmenni : hugmyndir fyrir fagfólk og foreldra til að auka útiveru ungmenna. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45668