Back to search

University of Iceland

Námsgengi fjöltyngdra barna : hvernig ná þau mestum árangri í námi?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni í grunnskólakennslu yngri barna á kennslu- og menntunarfræðibraut Háskóla Íslands á vorönn 2023. Í ritgerðinni er fjallað um námsgengi fjöltyngdra barna í grunnskólum og hvernig þau ná sem bestum árangri. Ástæða viðfangsefnis er meðal annars gífurlegur fjöldi flóttafólks og innflytjenda sem kemur til Íslands á hverju ári. Ljóst er að fjöltyngd börn á Íslandi er nemendahópur sem mun stækka með árunum. Menntakerfið á Íslandi er ekki tilbúið í að taka á móti sístækkandi hópi fjöltyngdra barna og því þarf að leita leiða hvernig hægt sé að bæta námsgengi þeirra. Bæði íslenskar og erlendar rannsóknir eru nýttar og niðurstöður úr þeim skoðaðar. Helstu niðurstöður eru að efling orðaforða fjöltyngdra barna í skólatungumálinu skiptir gríðarlega miklu máli fyrir námsgengi þeirra. Mikilvægt er að skólastjórnendur, kennarar, leiðbeinendur og aðrir starfsmenn skóla nýti sér efni sem styður námsgengi fjöltyngdra barna eins og fram kemur í þessari ritgerð. Einnig getur það verið gagnlegt fyrir öll þau sem vinna með börnum og unglingum að kynna sér hvernig hægt er að styðja við fjöltyngd börn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda María Valgeirsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45611
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45611

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda María Valgeirsdóttir 1997-. Námsgengi fjöltyngdra barna : hvernig ná þau mestum árangri í námi?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45611