University of Iceland
Birtingarmyndir kynjaðra viðmiða og kynlífshegðunar í framhaldsskólablöðum
Abstract
dc:description.abstractÞessi rannsóknarskýrsla er lokaverkefni til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Bakgrunnur verkefnisins sem stuðst er við felst í kenningum um kynjakerfið, kvenleika, karlmennsku og kynlífshandritið. Kynlífshandrit vísar til þess að væntingar í kynferðislegum athöfnum séu háðar ríkjandi orðræðu í samfélaginu um æskilega og óæskilega kynlífshegðun. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þetta geti reynst meðvitað og ómeðvitað. Þessi skýrsla er eigindleg rannsókn þar sem rýnt er í skólamenningu framhaldsskólanema og er það gert með því að krítíst orðræðugreina skólablöð frá einum framhaldsskóla á árunum 2011 til 2022. Í því ljósi er tilgangur verkefnisins að fá innsýn í þá umræðu sem birtist í skólablöðunum sem beinist að kynlífshegðun og kynjuðum viðmiðum. Niðurstaðan leiddi í ljós að í skólablöðunum ríkja kynjaðar staðalmyndir og á það einnig við í kynlífshegðun þar sem þau eru undir áhrifum frá hinu gagnkynhneigða kynlífshandriti. Má sjá það birtast í því að kynjaðar staðalmyndir ríkja þar sem annars vegar stelpur og hins vegar strákar hafa gjarnan gagnstætt hlutverk. Sú þróun sem hefur átt sér stað í skólablöðunum undanfarin ár er að beinast í rétta átt en það er rými til bætingar þar sem skortur er á fjölbreytileika en það á meðal annars við um sýnileika hinsegin fólks.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Nanna Lísa Schweitz 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45468
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45468