University of Iceland
Tengsl útundanótta við sálfélagslegar breytur: Hlutverk félagslegs samanburðar og þarfarinnar fyrir að tilheyra
Abstract
dc:description.abstractTilkoma tækninýjunga eins og samfélagsmiðla gerir fólki kleift að vera í meira sambandi við fjölskyldu og vini. Mikil notkun samfélagsmiðla hefur þó tengsl við neikvæða þætti á borð við útundanótta. Útundanótti er ótti við að aðrir séu að upplifa meira gefandi reynslu en maður sjálfur og einkennist af sterkri löngun til þess að vita sífellt hvað aðrir eru að gera. Rannsóknir hafa sýnt að útundanótti hefur tengsl við ýmsa sálfélagslega þætti eins og félagslegan samanburð og þörfina fyrir að tilheyra en óljóst er hvaða þættir hafa sterkust tengsl við hann. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl útundanótta við sálfélagslegar breytur og algengi hans á Íslandi. Tilgáturnar sem lagðar voru fram voru eftirfarandi: (1) Mikil þörf fyrir að tilheyra tengist meiri útundanótta, (2) sterk tilhneiging til að bera sig saman við aðra hefur tengsl við meiri útundanótta og (3) persónuleikagerðir hafa mismunandi tengsl við útundanótta. Þátttakendur voru nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands. Tengill með spurningalista og kynningarbréfi var sendur með tölvupósti til þátttakenda en gögnum var einnig aflað með snjóboltaúrtaki á Facebook-síðum rannsakenda. Þeir svöruðu meðal annars spurningum um útundanótta, félagslegan samanburð, þörfina fyrir að tilheyra, persónuleika og notkun samfélagsmiðla. Þátttakendur voru samtals 474 á aldrinum 18 til 73 ára. Meirihluti þátttakenda var konur (82,5%). Tengsl útundanótta voru sterkust við þörfina fyrir að tilheyra (β = 0,28), samfélagsmiðlafíkn (β = 0,21) og félagslegan samanburð (β = 0,18) í fullleiðréttu líkani. Einnig voru tengsl milli meiri útundanótta og minni samviskusemi (β = -0,09). Allar breytur skýrðu 62,6% af heildarbreytileika útundanótta. Rannsóknin er sú fyrsta á Íslandi til að kanna algengi útundanótta og tengsl hans við nokkrar sálfélagslegar breytur. Út frá niðurstöðum má álykta að minni samviskusemi, meiri þörf fyrir að tilheyra og meiri félagslegur samanburður tengist upplifun á meiri útundanótta. Rannsóknin eykur vísindalega þekkingu á viðfangsefninu og leggur grunn að frekari rannsóknum. Lykilorð: Útundanótti, þörf fyrir að tilheyra, félagslegur samanburður, persónuleiki, samfélagsmiðlafíkn, samfélagsmiðlanotkun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Kolbrún Jónsdóttir 1986-
- Agnes Hekla Árnadóttir 1992-
- Agnes Sigurðardóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44743
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44743