Back to search

University of Iceland

Sjálfbærar orkulausnir fyrir Ísland. Helstu áskoranir, tækifæri og framtíðarsýn í orkumálum

Abstract

dc:description.abstract

Orka og orkumál er viðfangsefni sem höfundi þótti og þykir mjög áhugavert og spennandi efni að skoða betur og læra meira um þar sem fyrirbærið orka er allt í kringum fólk og er uppistaða alls í raun og veru. Í þessari ritgerð verður farið fræðilega yfir orku og fjallað um orkuna almennt, uppruna hennar og mikilvægi og samfélagsleg áhrif sem hún hefur á daglegt líf. Fjallað er um hugtakið og fyrirbærið orku og hlutverk hennar í samfélaginu ásamt mikilvægi orkuöryggis. Saga orkuiðnaðarins er einnig rannsökuð, þar á meðal notkun hvalolíunnar sem orkugjafa. Í ritgerðinni er síðan kafað í mismunandi tegundir orkugjafa sem notaðar eru á Íslandi með sérstakri áherslu á endurnýjanlega orku, hvernig Ísland stendur á heimsvísu þegar kemur að orkuauðlindum í umhverfinu og spennandi framtíðartækifærum landsins í framleiðslu á endurnýjanlegum orkugjöfum. Kostir og gallar kjarnorku eru greindir, með dæmisögu um Tsjernobyl hörmungarnar svo eitthvað sé nefnt. Einnig er fjallað fræðilega og ítarlega um notkun jarðefnaeldsneytis, vatnsafls, vindorku og sólarorku sem orkugjafa. Að lokum veitir ritgerðin gagnrýna greiningu á rafmagnseldsneyti, þar með talið styrkleika þess, veikleika, tækifæri og ógnir. Ritgerðin leiddi í ljós að fyrir Ísland væri vænlegt að sækja fram með endurnýjanlegum orkugjöfum og væri tæknilega mögulegt að framleiða rafeldsneyti sem framtíðarorkugjafa þar sem landið býður upp á aðstæður til þess og aðgengi að endurnýjanlegum auðlindum er til staðar sem reynsla er af að nýta til orkuskipta á landinu. Litið er á framleiðslu rafeldsneytis sem lausn í stað jarðefnaeldsneytis í samgöngum þar sem ekki er hægt að nota beina raforku. Það er kolefnishlutlaus orkugjafi sem búist er við að verði eftirspurn eftir á næstu árum. Framleiðsla rafeldsneytis gæti stuðlað að orkusjálfstæði Íslands, kolefnishlutleysi og að standa við skuldbindingar í loftslagsmálum á alþjóðlegum vettvangi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Leó Kristinn Þórisson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44150
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44150

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Leó Kristinn Þórisson 2000-. Sjálfbærar orkulausnir fyrir Ísland. Helstu áskoranir, tækifæri og framtíðarsýn í orkumálum. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44150