University of Iceland
Að haga seglum eftir vindi. Reynsla markaðsstjóra af því að skapa sérstöðu á orkudrykkjamarkaði
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að öðlast innsýn inn í reynslu markaðsstjóra á því að skapa sérstöðu fyrir vöruna sína. Rannsóknarspurning rannsóknar hljóðaði því svo: ,,Hver er reynsla markaðsstjóra af því að skapa sérstöðu á orkudrykkjamarkaði?‘‘. Meginhugtak hennar gengur út á að skoða aðgreiningu frá samkeppni og sköpun sérstöðu vörumerkja. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð með fyrirbærafræðilegri nálgun þar sem tekin voru fjögur opin viðtöl sem nýtt voru til greiningar á niðurstöðum. Markmiðið var að komast að kjarna (e. essence) spurningar útfrá upplifun viðmælenda. Þau lykilhugtök sem komu fram í rannsókn voru mikilvægi stefnumótunar, aðferðir í upplýsingamiðlun, samkeppnisgreining, sköpun sérstöðu og vörumerkjavitund. Þemun sem birtust útfrá upplifunum þáttakenda voru eftirfarandi, virkni, aðgreining, aðlögunarhæfni og mikilvægi vörumerkis. Þegar upplifun viðmælenda var skoðuð benda niðurstöður til þess að aðlögunarhæfni að síbreytilegu umhverfi og skýrir aðgreiningarþættir séu lykill að því að skapa sérstöðu fyrir vörumerki á orkudrykkjamarkaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tómas Atli Björnsson 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44132
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44132