Back to search

University of Iceland

Athugun á íslenskri þýðingu viðhorfalistans Survey of Pain Attitudes (SOPA)

Abstract

dc:description.abstract

Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar viðhorfalistans Survey of Pain Attitudes (SOPA) voru kannaðir. SOPA er 57 atriða sjálfsmatskvarði sem metur verkjaviðhorf sjúklinga. Áreiðanleiki, réttmæti og þáttabygging listans var athuguð. Til að meta hugsmíðaréttmæti útgáfunnar voru tengsl undirkvarða listans við önnur sálfræðileg mælitæki könnuð, þau eru þunglyndiskvarði Becks (BDI), kvíðakvarði Becks (BAI) og stytt útgáfa persónuleikaprófs Eysencks. Úrtakið samanstóð af 103 sjúklingum sem sóttu meðferð á Reykjalund endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Áreiðanleikastuðlar undirkvarða SOPA voru flestir viðunandi eða á bilinu 0,61-0,75 . Niðurstöður þáttagreiningar leiddu í ljós óljósa þáttabyggingu listans sem er í samræmi við niðurstöður annarra rannsakenda. Þær réttmætisathuganir sem gerðar voru í rannsókninni studdu réttmæti SOPA. Að auki reyndust meðalskor þátttakenda í samræmi við þau meðalskor sem fram hafa komið í bandarískum rannsóknum í sambærilegum hópum. Helstu takmarkanir rannsóknarinnar voru fáir þátttakendur og ójafnt kynjahlutfall þar sem konur voru í miklum meiri hluta eða 67% þátttakenda. Hvað framtíðarannsóknir snertir væri áhugavert að kanna áreiðanleika útgáfunnar í stærra úrtaki ásamt samleitniréttmæti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halla Ósk Ólafsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4405
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4405

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halla Ósk Ólafsdóttir 1986-. Athugun á íslenskri þýðingu viðhorfalistans Survey of Pain Attitudes (SOPA). 2010. http://hdl.handle.net/1946/4405