Back to search

University of Iceland

"Vinna sem skiptir máli". Reynsla stjórnenda íslenskra íþróttafélaga af mótun og miðlun á markvissri stefnu

Abstract

dc:description.abstract

Mótun á markvissri stefnu er lykilþáttur í því að skipulagsheildir nái árangri og dafni í því rekstrarlega erfiða umhverfi sem Ísland er. Markmiðið með rannsókninni var að kynnast reynslu stjórnarmeðlima á stefnumótun innan íþróttafélaga. Rannsóknarspurningin var: „Hver er reynsla stjórnenda íslenskra íþróttafélaga af mótun og miðlun á markvissri stefnu?“ Til þess að svara rannsóknarspurningunni var notuð eigindleg rannsóknaraðferð þar sem tekin voru fimm viðtöl við stjórnarmeðlimi íslenskra íþróttafélaga. Lykilhugtök rannsóknarinnar voru: stefnumótun, greiningartól, innleiðing á stefnu og menning. Viðtölin voru greind eftir fyrirbærafræðilegri greiningaraðferð með það að markmiði að komast að þeim kjarna (e. essence) sem endurspeglar reynslu og upplifun stjórnendana. Eftir greiningu á reynslu og upplifun stjórnendanna birtust fjögur þemu hjá rannsakanda út frá lykilhugtökum rannsóknar. Þau þemu voru: Stefnumótun er mikilvæg í rekstri, sækja í þekkingu tengda stefnumótun, skýr samskipti og samfélagsleg ábyrgð. Stjórnendur íslenskra íþróttafélaga upplifðu stefnumótun mikilvæga í starfi og töldu líklegra að félög næðu sínum markmiðum ef vönduð og skipulögð vinnubrögð voru nýtt. Reynsla og upplifun þeirra sýnir að það að sækja sér þekkingu á sviði stefnumótunar skiptir miklu máli. Niðurstöður benda til þess að skýr samskipti spili lykilhlutverk í því að innleiða nýja eða breytta stefnu ásamt því að félögin telja sig búa yfir samfélagslegri ábyrgð og að hún geti leitt til ávinnings í formi góðs orðspors. Eftir greiningu á viðtölum kom kjarninn (e. essence) í ljós: Þekking. Niðurstöður sýna að þekking og reynsla á stefnumótunarvinnu skilar árangri við mótun á markvissri stefnu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Freyr Sigurvinsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43185
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43185

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Freyr Sigurvinsson 2000-. "Vinna sem skiptir máli". Reynsla stjórnenda íslenskra íþróttafélaga af mótun og miðlun á markvissri stefnu. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43185