University of Iceland
Ánægja í parasamböndum : Nánd, ástríða, skuldbinding og virðing
Abstract
dc:description.abstractVirðing í parasamböndum hefur ekki verið mikið rannsökuð. Eldri rannsóknir á virðingu í parasamböndum leiddu í ljós að virðing getur haft jákvæð áhrif á ánægju í parasambandinu og gæði þess. Kenning Sternbergs um ástarþríhyrninginn útskýrir ástina út frá þremur meginþáttum nánd, ástríðu og skuldbindingu. Niðurstöður úr eldri rannsókn á ánægju hjá pörum leiddi ljós að ánægjan skipti miklu máli þegar það var horft til þess hvort að sambandið myndi endast. Hérlendis hafa ekki verið gerðar neinar rannsóknir varðandi virðingu og ástarþríhyrning Sternbergs þegar að það kemur að ánægju í parasamböndum. Markmiðið með rannsókninni var að fá nýjan og betri skilning á parasamböndum og hvort að virðing og þættir ástarþríhyrnings Sternbergs spái fyrir um ánægju í parasamböndum. Gerð var megindleg rannsókn og var spurningalisti sendur á nokkra valda hópa innan samfélagsmiðilsins Facebook. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að virðing, ástríða og stuðningur höfðu mestu áhrifin þegar að það kom að ánægju í parasambandinu. Rannsóknin leiddi í ljós að ójöfn verkaskipting í parasambandinu hafði neikvæð áhrif á ánægju í parasambandinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Guðrún Guðmundsdóttir 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43048
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43048