University of Iceland
„Þótt búið sé að finna fósturheimili fyrir barn er ekki þar með sagt að barninu líði betur“. Upplifun fyrrum fósturbarna á því að takast á við fullorðinsár með tilliti til stuðnings og eftirlits barnaverndar í fóstri
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi er lokaverkefni til MA gráðu til starfsréttinda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Megin viðfangsefni hennar var að fanga reynsluheim fyrrum fósturbarna á því að takast á við fullorðinsár og upplifun þeirra á stuðningi og eftirliti barnaverndaryfirvalda á meðan á fóstri stóð og við lok þess. Gagnaöflun fór fram í október 2022 og notast var við eigindlega rannsóknaraðferð. Átta viðtöl voru tekin við þátttakendur sem höfðu það sameiginlegt að hafa verið ráðstafað í fóstur til átján ára aldurs. Enn fremur var beint sjónum að upplifun fyrrum fósturbarna á eigin lífi í dag í samhengi við tengsl og afstöðu þeirra á fósturráðstöfun barnaverndaryfirvalda. Vonir eru bundnar við að niðurstöður rannsóknarinnar gefi fagaðilum innsýn í veruleika fósturbarna og stuðli að áframhaldandi þróun á bættri þjónustu við fósturbörn. Niðurstöður benda til þess að verulegur skortur hafi verið á stuðningi og eftirliti barnaverndaryfirvalda á meðan á fóstri viðmælenda stóð, jafnvel þrátt fyrir sterk merki um vanlíðan fósturbarns og óviðunandi heimilisaðstæður á fósturheimili. Viðmælendur hefðu viljað betri tengsl við barnaverndarfulltrúa á fósturtímabili og í upphafi fullorðinsára. Reynsla þátttakenda af upphafi fullorðinsára kallaði á áframhaldandi stuðning því þeir höfðu takmarkað stuðningsnet í lok fósturs. Þá benda niðurstöður ótvírætt til þess að góð tengsl fósturbarnanna við einhvern aðila í fóstrinu og fram á fullorðinsár hefði jákvæð áhrif á líðan, öryggi, sjálfstæði og áframhaldandi velferð þeirra, þrátt fyrir sögu um áföll, ofbeldi eða önnur erfiði. Ekki er hægt að alhæfa út frá niðurstöðum rannsóknarinnar en niðurstöðurnar eru þó í samræmi við niðurstöður annarra sambærilegra rannsókna á reynslu barna í fóstri. Af niðurstöðunum má sjá að full ástæða er til þess að barnaverndaryfirvöld rýni í það hvernig megi bæta stuðning við börn í fóstri og hvort hægt sé að stuðla að betri afkomu þeirra með áframhaldandi stuðningi í upphafi fullorðinsára. Lykilorð: Fóstur, fósturbörn, félagsráðgjöf, barnavernd, seigla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birta Hörn Guðmundsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43023
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43023