Back to search

University of Iceland

Vinátta í leikskólastarfi : rannsókn á vináttu og samskiptum í leikskóla

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um vináttu og samskipti í leikskólum. Vinátta og samskipti eru stór hluti af daglegu starfi leikskólans og eru starfsmenn hans ávallt með þau efst í huga. Einnig verður Vinaverkefni Barnaheilla skoðað sem er forvarnarverkefni gegn einelti. Megináherslur Vináttuverkefnisins eru umburðarlyndi, virðing, umhyggja og hugrekki. Allir þessir þættir tengjast vináttu og samskiptum og hversu miklu máli þau skipta í leikskólum. Í fyrsta hluta þessarar ritgerðar verður farið yfir hvað skilgreinir vináttu og hvaða máli hún skiptir fyrir börn. Einnig verður farið yfir samskipti barna og hvað einkennir þau. Þar á eftir verður einelti skoðað, hvað einelti er, hvað skilgreinir einelti og hvernig er hægt að fyrirbyggja það. Í öðrum hluta ritgerðarinnar verður fjallað um Vináttuverkefni Barnaheilla. Þar er verkefnið kynnt og innihald þess. Í þriðja hluta ritgerðarinnar verður greint frá viðtali sem var tekið við leikskólakennara, sem hefur umsjón með Vináttuverkefninu í sínum leikskóla. Þar segir hann frá starfinu sínu og hvernig leikskólinn hjá þeim vinnur með verkefnið og hvaða áhrif það hefur á barnahópinn. Greint verður frá niðurstöðum viðtalsins og umræður fylgja þar á eftir. Ritgerðinn endar á lokaorðum þar sem niðurstöður verða teknar saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Þorleifsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42988
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42988

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Þorleifsdóttir 1998-. Vinátta í leikskólastarfi : rannsókn á vináttu og samskiptum í leikskóla. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42988