Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi hefur fengið titilinn Með augum Sturlu - Markmið og viðhorf Sturlu Þórðarsonar til manna og málefna í Íslendingaköflum Hákonar sögu Hákonarsonar. Ritgerðin er undirverkefni stærra verkefnis er ber heitið Staðarhóll: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun. Þau markmið og þær rannsóknarspurningar sem ég leitast við að svara í meistaraverkefni mínu eru á þessa leið: 1. Afstaða höfundarins, Sturlu Þórðarsonar til manna og málefna í svokölluðum Íslendingaköflum Hákonar sögu. Sturla fléttar inn í Hákonar sögu frásagnir af atburðum á Íslandi á árunum 1221-1263. Þessir atburðir tengdust honum eða Sturlungaættinni á einn eða annan hátt. Þá er mikilvægt að bera saman eftirfarandi Íslendingakafla sögunnar við annað stærra ritverk, Sturlungu, sem Sturla átti hlutdeild að. 2. Vinnubrögð Sturlu Þórðarsonar við smíð Hákonar sögu og frelsi hans til að tjá skoðanir sínar til manna og málefna í sögunni. Þá verður rannsakað með hvaða hætti og að hvaða leyti Sturla var frjáls í vinnubrögðum sínum við ritsmíð verksins. Niðurstöður rannsóknar þessarar eru í megindráttum þær, að Sturla Þórðarson dregur fram það besta í fari aðalpersónu sögunnar, Hákonar Hákonarsonar Noregskonungs (1204 – 16. desember 1263), en þó á kostnað íslenskra höfðingja sem koma við sögu hennar. Þá tókst Sturlu einnig að koma persónulegum skoðunum sínum á framfæri til ýmissa persóna innan frásagnarinnar í Hákonar sögu, þá helst til þeirra sem voru andstæðingar hans á einhverjum tímapunkti. Sturla leggur áherslu á hversu lítið þeir reka konungserindi á Íslandi og dæmi eru um að þeir séu hunsaðir í frásögunni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þorsteinn Björnsson 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42765
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42765