University of Iceland
Málfærni yngri barna í grunnskóla. Grunnur lagður að nýju málþroskaprófi fyrir 6;0 til 9;11 ára
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Rannsókn þessi er fyrsta skref í þróunarferli nýju alhliða greiningarprófi sem ber vinnuheitið Málfærni yngri barna í grunnskóla, en það metur málþroska barna á aldrinum 6;0 til 9;11 ára. Lítil málsamfélög, eins og íslenskan tilheyrir, þurfa að geta veitt börnum með frávik á málþroska nauðsynlega þjónustu. Mikilvægt er að búa að áreiðanlegum og stöðluðum mælitækjum sem þróuð hafa verið út frá séreinkennum íslenskunnar og rannsóknum á henni. Þau mælitæki sem nú meta málþroska íslenskra barna á þessum aldri eru ýmist þýdd og staðfærð fyrir tæpum þremur áratugum síðan, eða sértæk greiningarpróf sem meta afmarkaða málþætti hjá börnum. Því er tímabært að búa til nýtt próftæki sem metur alhliða málþroska barna á þessum aldri. Aðferð: Valin voru alhliða erlend málþroskapróf til rýnirannsóknar en þau voru kortlögð út frá málþáttum ásamt því að rýnt var í undirpróf þeirra. Málþættir voru dregnir fram úr íslenskum málþroskarannsóknum og bornir saman við niðurstöður rýnirannsóknarinnar. Lögð voru drög að nýja málþroskaprófinu Málfærni yngri barna í grunnskóla en því er ætlað að meta alhliða málþroska barna á aldrinum 6;0 til 9;11 ára. Prófhlutar nýja málþroskaprófsins eru málskilningur og máltjáning en prófatriði undirprófa voru samin út frá fimm málþáttum tungumálsins. Innihaldsréttmæti á drögum nýja málþroskaprófsins var kannað með mati íslenskra talmeinafræðinga. Þeir veittu álit sitt á því hvort undirprófin og prófatriðin næðu að endurspegla birtingarmynd málþroska barna á þessum aldri og hvort þessi vísir að nýju prófi sé til þess fallinn að vera gagnlegur til mælinga á málþroska að mati þeirra. Niðurstöður: Niðurstöður rýnirannsóknar veittu upplýsingar um hvaða málþættir einkenna erlend málþroskapróf ætluð börnum á aldrinum 6;0 til 9;11 ára og hvers konar undirpróf þau innihalda. Setningafræði, beygingar- og orðhlutafræði og merkingarfræði voru þeir málþættir sem eru hvað mest áberandi í erlendum málþroskaprófum. Færni innan hljóðkerfisfræði og málnotkunar er síður metin. Íslenskar rannsóknir á málþroska barna á þessum aldri eru margar og gefa greinagóða vísbendingar um dæmigerðan málþroska íslenskra barna innan flestra málþátta en síst hafa verið gerðar rannsóknir innan málnotkunar íslenskra barna. Drög að nýja alhliða málþroskaprófinu Málfærni yngri barna í grunnskóla koma inn á alla fimm málþætti tungumálsins en undirpróf þess eru misvel fallin að því að meta málþroska barna á þeim aldri sem prófið er ætlað. Innihaldsréttmætisrannsókn sýndi að talmeinafræðingar töldu þau undirpróf sem meta skilning- og tjáningu orða innan merkingarfræði henti vel til að meta málþroska barna á umræddum aldri og ættu að vera hluti af nýju málþroskaprófi. Endurtekning bullorða og færni innan hljóðkerfisvitundar voru síst þau undirpróf sem talmeinafræðingar töldu að ættu að vera hluti af nýju málþroskaprófi. Umræða og ályktanir: Þeir málþættir sem eru einkennandi fyrir mat á málþroska barna eru innan setningafræði, beygingar- og orðhlutafræði og merkingarfræði. Hljóðkerfisfræði og málnotkun eru síst notuð til greiningar á málþroska barna þó svo þeir þættir veiti einnig mikilvægar upplýsingar. Íslenskar rannsóknarniðurstöður veita gagnlegar upplýsingar um færni íslenskra barna innan málþátta. Því hefur vísir að nýju málþroskaprófi verið gerður sem kemur inn á alla málþætti tungumálsins en setningafræði, beygingar- og orðhlutafræði og merkingarfræði eru áberandi stærri hluti þess. Þessi fyrstu skref í þróun nýs alhliða málþroskaprófs fyrir íslensk börn á aldrinum 6;0 til 9;11 ára verður til þess að fleiri rannsakendur taki við keflinu og vinna við þróun þess haldi áfram. Þegar nýja málþroskaprófið verður fullunnið mun það gagnast talmeinafræðingum í klínísku starfi við að meta málþroska barna. Einnig mun það nýtast í rannsóknum á málþroska íslenskra barna á umræddum aldri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Guðmundsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/41557
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/41557