Back to search

University of Iceland

Píratar og teknópopúlismi á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er spurt hvort að breytingar í íslenskum stjórnmálum í kjölfar hrunsins og uppgangur Pírata sé til marks um teknópopúlisma. Kenningar um teknópopúlisma sem pólitíska lógík og sem nýja flokksfjölskyldu verða útskýrðar en ítarleg umfjöllun er um flokksfjölskyldur. Teknópopúlismi verður til við samruna tæknikratískrar og popúlískrar orðræðu sem grefur undan grundvelli vinstri-hægri stjórnmála og fjölhyggju. Reynt að svara spurningunni með greiningu á á gögnum úr Íslensku kosningarannsókninni frá því fyrir og eftir hrun og með orðræðugreiningu á Grunnstefnu Pírata. Af gögnunum úr Íslensku kosningarannsókninni að dæma er ekki að sjá að teknópopúlismi einkenni íslensk stjórnmál. Aftur á móti gefur orðræðugreining á Grunnstefnu Pírata gefur til kynna að Píratar á Íslandi eigi mörg einkenni sameiginleg með teknópopúlískum flokkum. Því er ekki hægt að slá því fast að stjórnmál á Íslandi einkennist af meiri teknópopúlisma en vel mögulegt er að nánari athugun myndi leiða í ljós að svo sé.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjalti Björn Hrafnkelsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41329
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41329

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjalti Björn Hrafnkelsson 1994-. Píratar og teknópopúlismi á Íslandi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41329