Back to search

University of Iceland

Þvingaðir fólksflutningar frá Venesúela

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að skilja ástæður þess að fólk frá Venesúela leggur á flótta frá heimalandi sínu. Í ritgerðinni eru fólksflutningar frá Venesúela greindir út frá aðdráttaraflskenningu Lee og þrá-getu kenningarramma Carling og gerð er grein fyrir helstu orsökum flutninganna. Fólksflutningar milli landamæra geta annars vegar verið valkvæðir þ.e þegar fólk velur að fara til að hámarka eigin gagnsemi og hins vegar þvingaðir þ.e. þegar fólk neyðist til að flýja vegna neyðarástands í heimaríki sínu. Fólksflutningarnir frá Venesúela eru þvingaðir. Tog og þrýstiþættir (e. pull and push factors) eru þeir þættir sem annað hvort laða fólk til ríkis eða fælir það frá. Tog- og þrýstiþættir eru meginstef aðdráttaraflskenningar Lee og stjórna fólksflutningum. Helstu þrýstiþættir sem hafa áhrif á það fólk sem fer frá Venesúela eru m.a. skortur á grunnþjónustu, matvælum, aðgengi að heilbrigðiskerfi, óðaverðbólga, óstöðugleiki í stjórnmálum og ofbeldi af hálfu stjórnvalda. Þrá og getu kenningarrammi Carling útskýrir það hverjir flýja og hverjir verða eftir, en samkvæmt honum krefjast fólksflutningar bæði þrár og getu fólks og ef skortur er á öðru hvoru leiðir það til kyrrsetu. Kenningarramminn útskýrir vel af hverju meðalaldur flóttamanna er 39 ár, en það er sá aldur þegar fólk er getur almennt stundað atvinnu og hefur enn hreyfigetu. Rúmlega 5,4 milljónir manna hafa flúið Venesúela og flestir hafa flúið til nágrannalanda. Flestir þeirra sem fara eru á aldrinum 18 til 35 ára og eru kynjahlutföll mjög jöfn. Meirihluti þeirra sem hefur flúið Venesúela hefur hvorki lagalega stöðu flóttamanns eða umsækjanda um alþjóðlega vernd, sem gerir það erfiðara fyrir fólk að byrja nýtt líf í nýju landi þar sem það á m.a. erfitt með að fá atvinnuleyfi, aðgang að heilbrigðiskerfi og menntun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Ósk Örvarsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40785
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40785

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helena Ósk Örvarsdóttir 1998-. Þvingaðir fólksflutningar frá Venesúela. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40785