Back to search

University of Iceland

Forsjársvipting fyrir dómi: Hvað er barninu fyrir bestu?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna ástæður forsjársviptinga á tímabilinu 1. janúar 2016 – 31. desember 2020. Kannaðar voru helstu ástæður forsjársviptingar, hvernig gætt var að hagsmunum málsaðila með tilliti til barnaverndarlaga og gerður samanburður á fyrri sambærilegri rannsókn á málefninu. Innihaldsgreindir voru allir birtir dómar fyrir áður greint tímabil hjá íslenskum dómstólum með orðræðugreiningu. Niðurstöður sýndu fram á að helsta ástæða forsjársviptingar er neysla foreldra á áfengi og/eða vímuefnum (hér eftir nefnt vímuefni) eða í 47,8 prósent tilfella. Meðal málsmeðferðartími, frá fyrstu tilkynningu til forsjársviptingar var sex ár og einn mánuður sem er töluvert lengri tími en í fyrri rannsókn. Við greiningu gagna kom fram að hagsmunir barns voru í öllum tilfellum hafðir að leiðarljósi við málsmeðferð, þá var jafnframt algengara að börnum væri skipaður talsmaður borið saman við fyrrgreinda rannsókn. Vísbending er um að ástæðu þess megi rekja til setningu laga nr. 19/2013 um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Rannsókn þessi er framhaldsrannsókn á rannsókn Thelmu Hrundar Guðjónsdóttur sem hún byggði MA ritgerð sína á árið 2016. Vonast höfundur til þess að niðurstöður rannsóknarinnar varpi ljósi á aðstæður barna sem búa við óviðunandi heimilisaðstæður og þann skaða sem getur hlotist af of langri málsmeðferð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynhildur Ásta Harðardóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40104
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40104

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynhildur Ásta Harðardóttir 1984-. Forsjársvipting fyrir dómi: Hvað er barninu fyrir bestu?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/40104