University of Iceland
Áhrif styttri vinnuviku á gæði faglegs starfs í leikskólum : upplifun leikskólakennara
Abstract
dc:description.abstractMarmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hver upplifun leikskólakennara var af styttingu vinnuvikunnar og hvaða áhrif stytting vinnuvikunnar hafi haft á gæði faglegs starfs í leikskólum. Rannsóknarspurningarnar voru því eftirfarandi: ,,Hver er upplifun leikskólakennara af styttingu vinnuvikunnar?" og ,,Hvaða áhrif hefur stytting vinnuvikunnar haft á gæði í faglegu leikskólastarfi?" Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðarfræði þar sem gagna var aflað með hálfopnum viðtölum við 8 leikskólakennara. Allir viðmælendur voru með margra ára starfsreynslu og af þeim störfuðu sex sem deildarstjórar í leikskólum. Mikilvægt er að skoða hvaða áhrif stytting vinnuvikunnar í leikskólum hefur á gæði faglegs starfs þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að aukin gæði í leikskólastarfi hafa jákvæð áhrif á vellíðan, nám og alhliða þroska barna. Samkvæmt rannsóknum eru tveir stærstu áhrifaþættirnir, þegar kemur að gæðum í leikskólastarfi, menntun kennara og fjöldi barna á hvern starfsmann og styðja niðurstöður þessarar rannsóknar við það. Helstu niðurstöðurnar voru að stytting vinnuvikunnar getur haft áhrif á gæði faglegs starfs og er stærsti áhrifaþátturinn fjöldi barna á hvern starfsmann. Ef hver starfsmaður þarf að sjá um fleiri börn en alla jafna dregur úr gæðum faglegs starfs og álag á starfsfólk eykst. Í skólum þar sem ekki var undirmönnun þegar starfsfólk vann styttri vinnuviku og lögð var áhersla á að faglegt starf færi fram á morgnana urðu gæði faglegs starfs betri, meðal annars vegna þess að hægt var að skipta börnunum upp í minni hópa og meiri tími og rými gafst fyrir faglegt starf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Metta Norðdahl 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40048
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40048