Back to search

University of Iceland

„Ég held að stjórnendaþjálfun sé í raun bara sjálfsvinna og því mjög mikilvægt fyrir alla að skoða sjálfan sig í gagnrýnu ljósi”. Viðhorf stjórnenda til stjórnendaþjálfunar

Abstract

dc:description.abstract

Hlutverk stjórnenda hafa tekið miklum breytingum undanfarna áratugi og er óhætt að segja að hlutverk stjórnanda í dag er ekki svo auðvelt viðureigna. Nýjar áherslur og hugmyndir eru sífellt að koma upp á yfirborðið og alltaf er eitthvað nýtt sem kallar á athygli stjórnenda og gerir þeim því erfitt fyrir að einbeita sér að einu verkefni í einu. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða viðhorf stjórnenda til stjórnendaþjálfunar og athuga hvort forsenda væri fyrir innleiðingu á stjórnendaþjálfun hjá fyrirtækjum. Fræðilegur bakgrunnur er aðallega sóttur til erlendra rannsókna og greina sem tengjast stjórnendum, leiðtogamennsku og stjórnendaþjálfun. Markmið þessar rannsóknar var því að auka þekkingu á stjórnendaþjálfun með því að skoða viðhorf og reynslu stjórnenda sem hafa sjálfir nýtt sér stjórnendaþjálfun. Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð þar sem tekin voru viðtöl við níu stjórnendur sem höfðu reynslu af stjórnendaþjálfun og gátu því myndað sér skýra skoðun um þessi mál. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að viðhorf stjórnendana til stjórnendaþjálfunar var gott þar sem afgerandi meirihluti viðmælenda töldu þjálfunina hafa skilað sér nýrri þekkingu eða gefið skarpari mynd af nú þegar hlotinni þekkingu. Þá var hægt að álykta að góð forsenda væri fyrir því að innleiða stjórnendaþjálfun í fyrirtæki þar sem hún gæfi stjórnendum kost á verkfærum og aðferðum til þess að verða góður leiðtogi fyrir starfsmenn sína sem og þjálfunin gæti eflt þá í að vera fljótari að aðlagast síbreytilegum markaði og aðstæðum sem henta vel við aðstæður stjórnenda okkar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Dagný Bjarnadóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39806
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39806

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Dagný Bjarnadóttir 1992-. „Ég held að stjórnendaþjálfun sé í raun bara sjálfsvinna og því mjög mikilvægt fyrir alla að skoða sjálfan sig í gagnrýnu ljósi”. Viðhorf stjórnenda til stjórnendaþjálfunar. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39806