Back to search

University of Iceland

Ávinningur Landsnets af útgáfu samfélagsskýrslu. Tenging við samfélagsábyrgðarstefnu og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Abstract

dc:description.abstract

Raforkuflutningsfyrirtæki finna, líkt og aðrar skipulagsheildir, fyrir þrýstingi frá samfélaginu um að huga að samfélagsábyrgð í rekstri. Hagaðilar, innri og ytri, vilja fá upplýsingar um hvernig staðið er að samfélagsábyrgð innan skipulagsheildarinnar. Lög hafa verið sett um að veita þarf ófjárhagslegar upplýsingar í ársreikningi skipulagsheilda. Vandasamt getur verið að greina frá öllum mælikvörðum sem tengjast samfélagsábyrgð og því er gott að styðjast við alþjóðlegar leiðbeiningar, staðla og/eða viðmið sem samfélagsskýrslan byggja á. Ekki er ávallt skýrt hvort og þá hvernig samfélagsskýrsla tengjast samfélagsábyrgðarstefnu og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (framvegis Heimsmarkmiðin). Takmarkaðar rannsóknir eru til um samfélagsábyrgð hjá raforkuflutningsfyrirtækjum og auk þess er fátt vitað um framlag þeirra til samfélagsábyrgðar en þau eru mikilvæg innviðafyrirtæki. Það er fræðilegt gildi rannsóknarinnar en jafnframt bætir hún við upplýsingum á sviði samfélagsábyrgðar, þá sérstaklega samfélagsskýrslu. Hagnýtt gildi rannsóknarinnar er að niðurstöður munu veita stjórnendum Landsnets og annarra skipulagsheilda upplýsingar um hvaða ávinningur hlýst af útgáfu samfélagsskýrslu. Rannsóknin gefur öðrum skipulagsheildum möguleika á að spegla sig í niðurstöðum hennar, velja viðeigandi form samfélagsskýrslu og tengja sig við Heimsmarkmiðin. Markmið rannsóknarinnar er að kanna tengsl samfélagsskýrslu við samfélagsábyrgðarstefnu og Heimsmarkmiðin, sem og ávinning Landsnets af útgáfu samfélagsskýrslu með hliðsjón af reynslu annarra skipulagsheilda. Í rannsókninni eru settar fram þrjár rannsóknarspurningar. Rannsóknin er eigindleg og byggja niðurstöður á hálfstöðluðum viðtölum við starfsfólk þriggja skipulagsheilda og viðtalsrannsókn framkvæmd. Nýttur var viðtalsrammi til að fá svör við rannsóknarspurningunum. Helstu niðurstöður eru þær að skipulagsheildir sem hafa fengið tilnefningu til viðurkenningu fyrir samfélagsskýrslu ársins telja allar að ávinningur sé af því að gefa út samfélagsskýrslu. Samfélagsábyrgðarstefna viðkomandi skipulagsheilda styður síðan við samfélagsskýrsluna og það gera Heimsmarkmiðin líka. Niðurstöður leiða þó ekki með skýrum hætti í ljós hvort sé betra að vinna fyrst, stefnuna eða skýrsluna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Engilráð Ósk Einarsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39451
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39451

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Engilráð Ósk Einarsdóttir 1982-. Ávinningur Landsnets af útgáfu samfélagsskýrslu. Tenging við samfélagsábyrgðarstefnu og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39451