Back to search

University of Iceland

Þarmaflóran: Tengsl og áhrif á offitu og andlega líðan

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Áhugi um þarmaflóruna hefur farið sífellt vaxandi og ljóst er að hún hefur veigamiklu hlutverki að gegna í að viðhalda heilsu einstaklinga. Ójafnvægi í þarmaflóru getur valdið ýmsum sjúkdómum þ.m.t offitu og einnig er tenging við geðræn vandamál. Hægt er að hafa áhrif á samsetningu þarmaflórunnar á ýmsan máta, t.d með mataræði. Tilgangur og markmið: Markmið þessarar fræðilegu samantektar var að ræða samsetningu og hlutverk þarmaflórunnar, og skoða tengsl hennar við offitu og andlega sjúkdóma. Einnig að skoða hvaða áhrif mataræði hefur á samsetningu þarmaflórunnar og hvernig þessir þættir hafa áhrif á hvorn annan í víðu samhengi. Aðferð: Gerð var fræðileg samantekt þar sem heimilda var aflað af gagnasöfnunum Google scholar og Pubmed frá janúar 2021 til apríl 2021. Notuð voru ákveðin inntöku- og útilokunarskilyrði sem má sjá í töflu 1. Niðurstöður: Niðurstöðum var skipt niður í 4 hluta eftir því hvaða viðfangsefni var verið að skoða. Niðurstöður bentu til þess að tengsl eru á milli þarmaflóru og offitu, einnig við andlegan vanlíðan. Skoðuð voru tengsl milli offitu og andlegrar vanlíðunar, og eru þeir sem glíma við offitu líklegri til þess að glíma við andleg vandamál. Skoðuð voru áhrif mataræðis á þarmaflóru og getur mataræði haft áhrif á samsetningu hennar, fer þó eftir mataræði hvort þessi áhrif séu jákvæð eða neikvæð. Umræða og ályktun: Hægt er að draga þá ályktun að það sé tenging á milli þarmaflórunnar, jafnvægi og samsetningu hennar við ýmsa sjúkdóma og kvilla þ.á.m offitu. Einnig getur mataræði haft mikil áhrif á samsetningu og virkni þarmaflórunnar. Lykilorð: Þarmaflóra, offita, mataræði, andleg vanlíðan, bakteríur, meðferðarúrræði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Elísabet Ósk Þorsteinsdóttir 1997-
  • Ragnhildur Anna Ólafsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38434
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38434

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elísabet Ósk Þorsteinsdóttir 1997-; Ragnhildur Anna Ólafsdóttir 1997-. Þarmaflóran: Tengsl og áhrif á offitu og andlega líðan. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38434